Njóttu dvalarinnar í sumarbúðunum okkar. Frábær ævintýri með skipulögðu dagskrárefni í fjölbreyttu umhverfi þar sem náttúran gegnir lykilhlutverki.
Hólavatn er innarlega í Eyjafirði í fallegu og spennandi umhverfi. Dagskráin á Hólavatni er fjölbreytt og skemmtileg og á hverju kvöldi er fjörug kvöldvaka þar sem allir fá að taka virkan þátt. Börnin dvelja í rúmgóðum og nýlegum 6–8 manna herbergjum og öll aðstaða innandyra er björt og snyrtileg. Einkunnarorð Hólavatns eru ró í hjarta og gleði í sál og lögð er áhersla á vináttu, sköpunargleði og traust. Í hverjum flokki dvelja 34 börn.
Sumarbúðastarf KFUM og KFUK á Hólavatni hófst árið 1965.
Njóttu dvalarinnar í sumarbúðunum okkar. Frábær ævintýri með skipulögðu dagskrárefni í fjölbreyttu umhverfi þar sem náttúran gegnir lykilhlutverki.
Á Hólavatni er lögð áhersla á að öllum líði vel og njóti dvalarinnar. Við leggjum mikið upp úr því að starfsmenn félagsins séu bæði hæfir og vel undirbúnir fyrir starf sitt.
Stöðugt er unnið að uppbyggingu og endurnýjun aðstöðunnar í sumarbúðir KFUM og KFUK. Fáðu frekari upplýsingar um hvernig þú getur stutt okkur.
Hér eru vísanir í lög KFUM og KFUK á Íslandi og einstakra starfsstöðva félagsins.
Mikilvægt er fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.Siðareglur þessar gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða KFUM og KFUK.
Lærðu meira um áreitnitilvik og hvernig á að tilkynna þau.