
Tuttugu krakkar komu á Hólavatn á mánudag. Farið var í leiki upp í laut að venju eftir mat. Alls kyns leikir í boði. Vatnið var svo opið þótt ekki hafi verið svakalega mikið um það í flokknum vegna sterkrar sunnanáttar – en þó eitthvað.
Á hverju kvöldi er kvöldvaka og var eftirtektarvert hve vel krakkarnir tóku undir í söng eftir að við vorum búin að kenna þeim nokkra Biblíu-slagara, en sum kunnu margt af þessu frá alls kyns fyrri reynslu og kórastarfi, eða bara sunnudagaskóla. En foringjunum fannst líka svakalega gaman að syngja og það hefur líka smitandi áhrif. Og undirrituðum finnst rosalega gaman að spila á píanóið hjá þessum krökkum, því þegar vel er tekið á því þá er það bara g-a-m-a-n.
Á þriðjudegi var farið í ratleik að morgni en þá þurfti að skottast út um allt hér í kring og svara spurningum. Eftir hádegi var feikispennandi stangartenniskeppni en við fengum að gjöf tvö stangarkerfi í stangartennis frá systursumarbúðum okkar að Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit og færum þeim innilegar þakkir fyrir. Það er skemmst frá því að segja að það kepptu nánast allir og allir voru þarna til að styðja þá sem kepptu hverju sinni. Áfram bæði og áfram þessi og áfram hinn, hljómaði utan við húsið. Mikil stemmning og skemmtun hjá þeim – ótrúlegt hvað þeim finnst þessi hringekja skemmtileg og fá bara ekki leið á því.
Á hverjum morgni er morgunstund með trúarfræðslu. Það sem við gerðum að þessu sinni á hverjum morgni (þri-fim) var að kenna þeim að fletta í Nýja-Testamentunum sem við fengum í síðustu viku frá félagin Orðið að gjöf. Samhliða því voru þættir úr teiknimyndaseríunni Hey-O frá Saddleback kirkjunni spilaðir og flett upp af kappi á þeim stöðum sem teiknimyndaþættirnir leiddu okkur. Þættina rúmlega 200 má finna á Youtube. Og hvetjum við foreldrana til að horfa á einhverja þætti með börnum sínum, af nógu er að taka, og ef þau eru hvort sem er að horfa á heila bunu að myndböndum á hverri viku, væri ekki óvitlaust að skella inn á milli einhverju með djúpan og góðan boðskap inn á milli 😉
Á miðvikudagsmorgun eftir morgunstund að var gengið upp á Hólinn sem ónefndur jökull skildi eftir hérna og Hólavatn stendur við. Sögur voru í hverju stoppi og á toppnum var tekin Legendary hópmynd með Hólavatn í bakgrunni. Að hádegismat liðnum var farið í Herra Tristan-Challange (sambærilegt við Mr.Beast last-to-leave-the-circle-challange). Einn stóð upp sem sigurvegari, en margir hlutu aukinn þolstyrk .
Það var skammt á mili stórra atriða, en næst var Hunger-Games og Morð í myrkri – en það var í plati – engar áhyggjur.
Á fimmtudag var meðal annars farið í svokallaðan tuskuleik þar sem krakkarnir þurftu fimlega að forðast útstrokanir á pennastrikum frá foringjum en börnin geta útskýrt þetta nánar. Eftir hádegi var rennt út á fótboltaflöt og tekin vænn leikur þar sem starfsfólkið keppti við börnin. Eftir svita og tár (og fyrir suma að stinga tánum ofan í Hólavatn) fóru allir í sturtu og skelltu sér í sitt fínasta púss fyrir veislukvöldið.
Prúðir krakkar tóku svo góðan þátt í veislukvöldkvöldvökunni í framhaldi. Eitt að því sem var gert öðruvísi að nokkrir starfsmenn sýndu skemmtilegt myndband sem hafði verið tekið í flokknum þeim til skemmtunar. Það var flott og vel klippt skemmtiefni þar sem börnin sáu sig sjálf í ýmsu fjöri, ásamt upprifjun. Hin dýrmætasta skemmtun. Eftir það fórum við niður að vatni og kveiktum upp í varðeld og grilluðum sykurpúða.
Vikan einkenndist af blandi af sól og skýjum, en þó aðallega strangri sunnanátt, með hléum þó og hitastig í kringum 10-15°C.
Eins og oft er þegar margir krakkar koma saman úr ýmsum áttum og bakgrunni þá eru einhverjir sem finna sig ekki alveg fyrst, og þannig var líka hjá okkur fyrst. Einhver með heimþrá í 2 nætur, einhver meira með völdum vinum en öllum, og öll eigum við erfitt með einhver samskipti og þannig var það líka með krakkana. En það sem var eftirtektarvert var að þau hjálpuðu hvort öðru að yfirvinna alls kyns erfiðleika í þessum efnum, og stundum leiddi næstum-haltur næstum-blindan og einn studdi annan. Þegar það átti gátu börnin jafnvel rætt sín á milli um að sumt ættu þau erfitt með. En við klöppuðum til dæmis fyrir börnunum í morgunmat eftir þriðju nóttina og óskum þeim sem áttu áður erfitt með það, til hamingju með árangurinn.
Á föstudag er stefnt að því að ganga út í Hólakirkju með krakkana og enda í hádegismat áður en rútan fer með okkur til Akureyrar og þetta ævintýri endar.
Sjá myndir hér.
Kveðja fyrir hönd starfsfólksins á Hólavatni,
Sigurður Bjarni Gíslason, forstöðumaður 3. flokks.