Kvennaflokkur í Vindáshlíð

Helgina 28. til 30. ágúst verður kvennaflokkur í Vindáshlíð: Ofin af Guði. Þar verður frábær dagskrá, ljúffengur matur og yndislegur félagsskapur.

Í ár verður einnig hægt að mæta degi fyrr, fimmtudaginn 27. ágúst, og taka þátt í vinnuflokknum Krafta- og kraftaverkakonur. Í boði verða fjölbreytt og skemmtileg verkefni svo allar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hægt er að ganga frá skráningu í kvennaflokkinn hér: https://sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12782

Þær sem vilja líka skrá sig í vinnuflokkinn geta smellt hér:

– Mæting á fimmtudegi: https://sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12896

– Mæting snemma á föstudegi: https://sumarfjor.is/Slot.aspx?id=12897  

Dagskrá vinnuflokks

Fimmtudagur – Við leggjum hönd á plóg.

17:00 Mæting og verkefni. Við mætum, komum okkur fyrir og tökum til í hendinni.

19:00 Kvöldverður.

21:00 Bænastund í kirkju.

22:00 Kvöldkaffi og kósý.

Föstudagur – Við klárum verkin.

8:00-10:00 Morgunverður.

10:00 Verkefni.

12:30 Hádegismatur.

13:30 Verkefni.

15:00 Kaffi.

Dagskrá kvennaflokks

Föstudagur.

16:00 Mæting og komið sér fyrir.

19:00 Kvöldverður.

20:30 Kvöldsamvera

  • „Í góðra vina hóp – Húrra húrra“.
  • Upphafsorð og bæn: Sr. Helga Kolbeinsdóttir.
  • Betsy og Dadda fara yfir söngarfinn okkar.
  • Söngvar – lög Vindáshlíðar.

22:00 Kvöldkaffi

22:30 Söngstund í kirkju (óskalög) – frjáls mæting.

Laugardagur.

9:00-10:00 Morgunverðarhlaðborð.

10:00 Fánahylling.

10:15 Biblíulestur.

  • Sr. Helga Kolbeinsdóttir.
  • Sálmarnir 139:13-14.
  • Ofin af Guði „Þú myndaðir nýru mín, ófst mig í móðurkviði.

12:00 Hádegisverður.

13:00 Frjáls tími.

  • T.d. brennó, ganga, berjatýnsla, handavinna í setustofu, undirbúningur fyrir kvöldvöku, skotthúfuprjón.

15:30 Kaffi.

16:00 Eftirmiðdags samvera. Danskennsla í undirbúningi fyrir veislukvöld.

18:30 Veislustund í kirkju. Tónlistaratriði frá Zimsen systrum.

19:00 Veislukvöldverður.

20:30 Veislukvöldvaka.

  • Upphafsorð og bæn: Sr. Helga Kolbeinsdóttir.
  • Konur hvattar til að vera með atriði og láta ljós sitt skína.

22:00 Kvöldkaffi.

22:30 Lofgjörðarstund og vitnisburðarstund – frjáls mæting.

Sunnudagur

9:00-10:00 Morgunverðarhlaðborð.

10:00 Fánahylling.

10:15 Frjáls tími.

11:00 Messa í Hallgrímskirkju.

  • Sr. Hildur Sigurðardóttir messar.

12:00 Hádegisveðrur og uppboð á veitingum.

13:00 Frágangur herbergja og brottför.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum