Opinn framkvæmdafundur

Þriðjudaginn 22. september kl. 20:00 heldur stjórn Vindáshlíðar opinn framkvæmdafund í húsnæði KFUM og KFUK að Holtavegi 28.

Fundurinn verður tileinkaður nýrri viðbyggingu í Vindáshlíð, sem stefnt er að því að rísi á næstu árum.

Á fundinum munum við kynna teikningar og hugmyndir að nýju húsnæði sem mun að stórum hluta taka við núverandi aðalskála, þar sem hann uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til slíkrar starfsemi í dag. Því er þetta afar mikilvægt skref í uppbyggingu Vindáshlíðar.

Í nýju viðbyggingunni verður meðal annars gert ráð fyrir fjórum barnaherbergjum, starfsmannaálmu, matsal og eldhúsi.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta og taka þátt í þessu mikilvæga samtali. Framtíð Vindáshlíð er sameiginlegt verkefni okkar allra og okkur langar að heyra hvað ykkur finnst áður en við tökum næstu skref.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Fréttir úr starfinu

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum