

Nú eru margir byrjaðir að huga að verkefninu Jól í skókassa og sumir meira að segja komin með allskonar skemmtilegt til að setja í þá.
Það er ekki alltaf sem að tómur skókassi er til á heimilinu, og sumum finnst frekar erfitt að pakka þeim inn í jólapappír. En við höfum ráð við því. Kassarnir góðu eru komnir hingað á Holtaveg.
Kassarnir eru í staðlaðri skókassa stærð og koma flatir svo að það fer ekki mikið fyrir þeim. Kostur er að auðvelt er að setja þá saman. Á einni hliðinni er líka reitur þar sem að hægt er að merkja við bæði hvort gjöfin er fyrir dreng eða stúlku og fyrir hvaða aldurshóp hún er.
Hægt er að koma hingað á Holtaveg 28 á skrifstofutíma og kaupa kassa. Skrifstofan er opin mánudaga – fimmtudaga frá 8-16 og á föstudögum frá 8-15.
Kassinn kostar 500 kr.
Við minnum á að síðasti móttökudagur verkefnisins fyrir jólin 2026 á höfuðborgarsvæðinu er laugardagurinn 14. nóvember.