Takk fyrir að taka þátt

Við viljum byrja á að þakka ykkur öllum fyrir að taka þátt í verkefninu með okkur. Það voru vinahópar, fjölskyldur, vinnustaðir, félagsstörf og einstaklingar sem að tóku þátt. Margir lögðu leið sína hingað á Holtaveg og aðrir komu sínum kössum til tengiliða okkar úti á landi. Kassarnir voru hver öðrum fallegri og eiga eftir að gleðja börnin mjög mikið Fólk var svo sannarlega að vanda sig þegar það var að útbúa sína kassa. Þetta verkefni væri ekki hægt án ykkar.

Í gær, mánudaginn 16. nóvember, lögðu svo 4440 kassar af stað í ferðalagið til Úkraínu, þegar gámurinn var sóttur hingað á Holtaveg.

Á myndinni má sjá þegar byrjað var að raða brettunum með skókössunum í gáminn.

Fréttir úr starfinu

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum