
Í dag hófst 5. Flokkur, ævintýraflokkur. 33 kátar stelpur lögðu af stað á Hólavatn í roki og rigningu en þær létu það ekkert á sig fá enda var farið beint upp í laut sem er vaninn á fyrsta degi. Þar fengu þær að kynnast betur í gegnum nafnaleiki áður en farið var í þjóðaríþrótt Hólvetninga Hólakó (skotbolti) og fleiri leiki. Í kjölfarið var hádegismatur þar sem boðið var uppá fisk í raspi og var hann borðaður af bestu list.
Eftir hádegi var svo opnuð algjör föndursprengja í matsalnum þar sem stelpurnar fengu að lita, mála, perla og fl. Það vantar svo sannarlega ekki listahæfileikana í þennan hóp, einnig var búin til kósý stemmning undir stiganum þar sem þær hópuðust saman og fóru í leik sem kallast varúlfur. Í kaffinu var svo boðið upp á ljúffenga heita súkkulaðiköku og ávexti.
Eftir kaffi hafði veðrið lítið skánað en það var hlýtt svo farið var í tuskuleikinn: ævintýraverur voru búnar að dreifa sér víðsvegar um Hólavatn með þrautir fyrir stelpurnar að leysa og ef þeim tókst að leysa þær fengu þær litað strik á höndina að launum, en þær þurftu að hafa varan á því að tvær brjálaðar tuskur voru á hlaupum í von um að ná þeim og þurrka strikin burt. Fimm strik þurftu þær til að vinna leikinn og flestum þeirra tókst að gera það. Í kvöldmatinn var heitt og gott lasagne með hvítlauksbrauði og salati.
Fjörið var samt bara rétt að byrja því nú var Hólavatns kvöldvaka að hefjast. Sungið var fullt af skemmtilegum söngvum og léku foringjar fyrir þau leikrit þar sem hlegið var mikið. Kvöldvakan endaði svo á hugleiðingu um það hvernig Guð talar við okkur og hvernig við eigum að mæta náunganum.
Beint eftir kvöldvöku hófst svo ratleikur þar sem herbergin fóru saman út í leit að bænaforingjunum sínum. eftir langan og fjörugan dag fóru þær svo þreyttar en sáttar að sofa.
Hlýjar kveðjur, Dagbjartur Elí Forstöðumaður.
Myndir koma inn á flickr á morgun. 🙂