
Þriðji dagur genginn garð og vöknuðu stelpurnar virkilega hressar, enda fengu þær smá útsof eftir allt fjörið og hasarinn í gærkvöldi. Dagurinn byrjaði á morgunverði og morgunstund þar sem þær lærðu að fletta í Nýja testamenntinu og heyrðu dæmisögu Jesú um týnda soninn og boðskapinn sem fylgir henni ásamt því að syngja heilan helling og ég hef en ekki komist yfir það hversu fallega þær syngja. Í hádeginu fengu þær svo afgangahlaðborð með þeim gómsætu réttum sem bornir voru fram á fyrstu dögunum.
Eftir hádegismatinn var sólin farinn að láta sjá sig og hlýtt í veðri, stelpurnar voru kallaðar saman og lögðu af stað í göngu þar sem förinni var heitið að drulluvík og að sjálfsögðu með sundföt meðferðis. Drulluvík er hinum megin við Hólavatn og er tilvalinn staður til þess að leika sér og busla í vatninu. Um kaffileitið komu svo foringjar með kaffi til stelpnana og boðið var upp á ávexti og nýbakaða snúða, í kjölfarið var svo aftur gengið að Hólavatni með fram vatninu þar sem þeim var síðan boðið í sturtu og kósý.
Fyrir kvöldmat voru bátarnir loksins opnaðir eftir mikla örvæntingu stelpnana vegna þess að fyrst í dag hætti að blása svona hrikalega og vatnið loks nógu öruggt til þess að hleypa þeim á bátana. Í kvöldmatinn var grjónagrautur með kanilsykri og var hann borðaður með bestu list. Bátarnir héldu áfram eftir matinn og voru virkilega vinsælir en á sama tíma var leikur Argentínu og Englands sýndur upp í húsi þar sem stelpurnar fögnuðu sigri Argentínu.
Beint eftir fótboltaleikinn var hringt inn í fjöruga kvöldvöku stútfulla af leikritum og söngvum. Eftir að kvöldsöngurinn var sunginn voru þær sendar upp í hengirúmin þar sem að huglan fór fram. Á meðan voru foringjar að undirbúa óvænt náttfatapartý sem slær alltaf í gegn. Þegar þær komu aftur í hús og heyrðu skemmtilega tónlist vissi þær nákvæmlega hvað var að gerast (enda margar þeirra ekki að koma í fyrsta sinn á Hólavatn) og ráku upp fagnaðaróp. Dansað var síðan langt fram á kvöld en þegar þreytan var farin að segja til sín fóru þær í háttin og sofa nú vært og rótt.
Hlýjar kveðjur, Dagbjartur Elí Forstöðumaður. 🙂