
Vinnuflokkar
Á vorin og haustin fara Hollvinir Hólavatns gjarnan vinnuferðir til að sinna viðhaldi, grisjun og huga að staðnum fyrir upphaf starfs eða til að undirbúa veturinn. Oft er hægt að gista á staðnum og jafnvel taka fjölskylduna með og eiga góðar stundir milli þess sem við vinnum. Finnið endilega „Hollvinir Hólavatns“ á facebook.

