5. Flokkur Hólavatni – Dagur 2

Stelpurnar vöknuðu misþreyttar á slaginu 08:30 í morgun og snæddu svo klassískan morgunverð áður en farið var í fánahyllingu og morgunstund. Í morgunstundinni voru sungnir skemmtilegir söngvar og lærðu að sama hvað bjátar á þá geta þau alltaf talað við Jesús og lagt á hann hverjar þær byrgðar sem þær bera. Fram að hádegismat var frjáls tími sem þær nýttu í að taka til í herbergjum, spila spjalla og föndra. Í háegismatinn var svo æðisleg Hólavatns pizza sem þær önduðu að sér.

Nú var komið að einum stærsta viðburði flokksins eða Hóló Olympics sem er bæði einstaklingskeppni og keppni á milli herbergja. Þær kepptu meðal annars í hjólabílarallýi, þrautabraut, rúsínuspýtingum, litakeppni og fl. að því loknu fengu þær svo að fara í kókoskúlugerð sem þær átu svo í kaffinu ásamt skonsum sem ráðskonan steikti. Borðað var með bestu list enda bragðast maturinn oft betur þegar maður býr hann til sjálfur.

Veðrið í dag var töluvert betra og lítið um rigningu svo að vatnið var opnað og fengu stelpurnar að vaða og leika sér við vatnið, þar næst var að sjálfsögðu boðið upp á sturtur og kósý fyirir þá sem vildu áður en hringt var inn í kvöldmat þar sem var boðið upp á gómsætar kjötbollur með sósu og bökuðum kartöflum.

Fljótlega eftir matinn hófst önnur kvöldvaka flokksins og ekki vantaði fjörið. Þær sungu hátt og fallega og minntu helst á kór sem æft hefur saman til fjölda ára. Foringjar héldu áfram að leika listir sínar í sprenghlægilegum leikritum og einnig var farið í nokkra leiki. Beint eftir kvöldvöku var stelpunum svo komið á óvart með einum vinsælasta leik Hólavatns: Morð í myrkri og minnir hann helst á þekktan tölvuleik sem kallast Among us. Foringjar voru búnir að klæða sig upp sem glæpa menn og hylja gluggana til þess að búa til extra skemmtilega stemmningu. Leikurinn stóð yfir í u.þ.b. tvo klukkutíma en þegar líða fór á kvöldið var kominn mikil þreyta í stelpurnar.

Nú eru þær háttaðar og komnar í ró og eflaust mikill spenningur fyrir morgundeginum, enda verður fullt skemmtilegt að gera og veðurspáin góð.

Hlýjar kveðjur, Dagbjartur Elí Forstöðumaður. 🙂

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum