Veisludagur

19.3 Stelpurnar vöknuðu eldhressar og tilbúnar í veisludag. Í bilblíu lestri vorum við að vinna með þakklæti. Við gerðum verkefni út frá því og það sköpuðust skemmtilegar umræður. Stelpurnar eru svo duglegar að taka þátt í allri dagskránni.

Úrslitin í brennó var næst á dagskrá, þær mættu allar til að hvetja vinkonur sínar. Gljúfrahlíð stóðu uppi sem sigurvegarar. Í hádegismatinn tortilla sem er alltaf vinsælt og þær borðuðu vel, Þury ráðskona er búin að standa sig svo vel að elda matinn fyrir okkur. það var svo farið í Ævintýragöngu í skóginum og leiki.

í kaffinu voru HM kökur, og döðlubrauð. Svo var komið að því að stelpurnar löbbuðu á milli herbergja og buðu vinkonum sínum nudd fléttur, naglalakk, og fl. 

í veislu mat var pizzuveisla, og foringjarnir veittu alskonar viðurkenningar.

Það var svo HM partý í kvöldvökusalnum og eftir það veislu kvöldvaka sem var svo skemmtileg.

Stelpurnar voru mjög þreyttar og sofnuðu fljótt. 

20.3

Stelpurnar hafa verið þreyttar í morgun, enn við létum það ekki stoppa okkur. Við áttum kósý kveðjustund í kirkjunni. Eftir það var komið að því að Gljúfrahlíð keppti á móti foringjum.

Við foringjar þökkum kærlega fyrir traustið á stelpunum,

þetta er búið að vera frábærir dagar og gaman að kynnast þessu dásamlegu stelpum

Við leggjum af stað frá vindáshlíð kl 14.

Bestu kveðjur 

Kristín Björt

Fréttir úr starfinu

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum