Loksins kom að besta degi vikunnar, veisludegi.
Eftir morgunmat fóru stelpurnar í biblíulestur þar sem við ræddum söguna um Davíð&Golíat. Margar könnuðust við söguna og áttum við góðar og mjög mikilvægar umræður um að hafa trú á sjálfri sér og ekki gefast upp. Eftir biblíulestur fóru fram úrslitaleikir í brennó og stóðu stelpurnar í Birkihlíð uppi sem sigurvegarar 2.flokks í ár. Í öðru sæti voru svo stelpurnar í Furuhlíð.
Í hádegismat var boðið uppá besta plokkfisk allra tíma, en einnig góðir afgangar úr vikunni fyrir þær sem kjósa að sleppa plokkaranum. Í útiveru fóru stelpurnar í göngu niður að þjóðvegi og kíktu í réttir. Þar fóru þær í réttarleikinn þar sem þær leika kindur og eru að hlaupa milli hólfa. Þessi ganga er krefjandi í bakaleiðinni enda labba þær upp á móti allan tímann. En heima beið þeirra súkkulaðikaka og bananabrauð sem rann ljúft niður eftir gönguna.
Eftir kaffitímann hófst vinagangur, en þar bjóða öll herbergi uppá einhvað inní herbergjunum sínum. Síðan labba þær á milli herbergja og skoða hvað hinar eru að bjóða uppá. Eftir vinagang löbbuðum við saman upp í kirkju og áttum þar saman yndislega stund. Úr kirkjunni fylgdum við aldargamalli hefð sem er að vefa mjúka, sem líkist allra helst „fram fram fylking“ niður í hús. Eftir það voru teknar herbergismyndir áður en við settumst niður í matsalnum fyrir veislukvöldverð. Foringjar voru búnir að skreyta og undirbúa salinn og svo sátu herbergin með bænakonum sínum og hámuðu í sig pizzu og djús. Meðan stelpurnar borðuðu voru veittar viðurkenningar fyrir verkefni vikunnar, ásamt íþróttadrottningu og brennóherbergi flokksins.
Foringjar sáu svo um kvöldvöku, sem er alltaf hápunktur flokksins. Það virðist vera alveg sama hversu oft börnin sjá atriðin, þau eru alltaf jafn fyndin og skemmtileg.
Í dag fór fram hinn vinsæloi brennóleikur milli sigurvegara flokksins á móti foringjum. Foringjar stóðu uppi sem sigurvergarar. Núna sitja stelpurnar úti og gæða sér á pulsum í sólinni. Stelpurnar eru búnar að vera til fyrirmyndar í þessum flokki og allar skemmt sér konunglega, foringjar þar með talið.
Rútan leggjur af stað kl. 14 og má áætla að við verðum komnar á Holtaveginn kl. 14:40 🙂
kveðja
Marín forstöðukona