
Í gær var geggjaður veisludagur þar sem við fögnuðum vel, borðuðum geggjaðar pizzur, hlóum mikið og skemmtum okkur vel. Foringjar gáfu viðurkenningar fyrir leiki og keppnir vikunnar, ræstir gaf bikar fyrir innanhúskeppnina, við krýndum brennómeistara og íþróttadrottningu. Foringjar sáu svo um kvöldvökuna og sögur segja að þessi hafi verið sú allra besta í sumar. Við enduðum veisludag á að borða ís saman í rólegri stund í setustofu.
Í dag er brottfaradagur, sem við byrjuðum á fallegri stund í Hallgrímskirkju og þaðan lá svo leiðin niðrí íþróttahús. Þar fór fram brennóleikur millu foringja og brennómeistara flokksins, Gljúfrahlíð. Eftir það kepptu foringjar+Grenihlíð, sem lentu í öðru sæti, á móti öllum hinum stelpunum í flokknum.
Næst á dagskrá er að fá sér pulsur og svo fara stelpurnar að pakka niður og eiga lokastund með bænakonum.
Rútan leggur af stað kl.14 frá Hlíðinni svo við ættum and koma á Holtaveginn um 14:45 🙂 Við erum þakklátar fyrir að hafa haft stelpurnar ykkar hjà okkur í vikunni og hlökkum til að sjà þær aftur á næsta àri.
kær kveðja, Marín forstöðukona