
Dagurinn í gær gékk sinn vanagang. Drengirnir tóku þátt í hinni ýmsu dagskrá sem foringjarnir stóðu fyrir. Í kvöldmat var planið að grilla og borða gómsætar pylsur úti fyrir aftan Birkiskála en fallið var frá því og þær borðaðar inni eftir veðurathugunarferð annars forstöðumannins upp á Kalastaðaháls þar sem mikið mistur hafi myndast og var að leiðinni niður í Vatnaskóg en hafði það enginn áhrif á dagskránna þar sem hin geisivinsæla Mr. Beast last to leave the circle þraut var á boðstólnum.
Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.
Til hamingju Skógarmenn!
Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hér hjá okkur í Vatnaskógi og dagskráin er þétt. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, íþróttahúsið opið, bátar og veiðar og ævintýri í skóginum svo eitthvað sé nefnt. Eftir hádegi er svo leikur drauma- og stjörnuliðs sem keppa við einvala lið foringja en einnig keppa þessi lið innbyrðis . Eftir kaffi verður svo stútfull dagskrá af skemmtun. Bronsleikur HM verður sýndur á risaskjá ásamt hágæða hljóðkerfi. Við vitum nú hvernig hann fór en úrslitunum hefur verið haldið leyndu frá strákunum til að geta sýnt þeim hann í dag. Þetta og meira framundan hér í Vatnaskógi.
Dagskrá kvöldsins er svo eitthvað í þessa átt. Veislumatur um kvöldið, myndataka og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarp Lindarrjóðri og léttu skonrokki að hætti foringjanna. Eftir kvöldvöku verður svo úrslitaleikur HM sýndur. Það hefur mikið verið mikið spurt af drengunum hvort við myndum nú ekki örugglega sýna hann en það er mikill spenningur fyrir honum en verður kvöldkaffið svo borðað yfir leiknum.
Morgunmatur – Rjómalagað kakó, nýbakað brauð og allskonar álegg
Hádegismatur – Brot af því besta!
Kaffitími – Sjónvarpskaka og bananabrauð
Kvöldmatur – Léttbankað vínarsnitsel, kartöflubátar og brúnsósa
Kvöldkaffi – Kex og mjólk
Svo viljum við benda á að láta okkur vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.
Hér er myndasíða flokksins: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Ísak Jón Einarsson, forstöðumaður.