
Dagurinn í gær gékk mjög vel. Milt var í veðri og bátarnir sívinsælu klikkuðu ekki. Sömuleiðis byrjuðu hér í gæt allskonar keppnir, það ríkir mikil hefð í Vatnaskógi að keppa í sem flestum greinum. En dæmi um keppnir eru listakeppni, arkitektakeppni og smíðakeppni. En svo eru líka stærri borða keppnir en þar eru stærstar Svínadalsdeildin, frjálsíþróttamótið og svo hegðunarkeppnin þar sem borðin keppast um að fá stig frá foringjum hvernig þeir hegða sér yfir daginn.
Fyrsta kvöldvaka flokksins var líka í gær og þar var sungið og trallað, hlustað á sögur og Leikfélagið Villiöndin steig á stokk og sló svo rækilega í gegn. Svo var boðið uppá kapellustund fyrir þá drengi sem vildu hafa rólegastund fyrir svefninn.
En nú er annar dagur flokksins runnin upp og drengirnir sofið sína fyrstu nótt. Stútfull dagskrá er framundan. Í dag fá þeir að hoppa í vatnið, fótboltinn og frjálsar halda áfram en svo er íþróttahúsið líka gríðarlega vinsælt og allt það sem það hefur fram á að bjóða eins og borðtennis, fótboltaspil, þythokkí og billiard. En þar er líka stór íþróttasalur þar sem drengirnir hafa verið duglegir að leika sér í alskyns boltaleikjum.
Veðrið hérna í skóginum er með besta móti og ekkert til að kvarta yfir.
Morgunmatur – Morgunkorn og súrmjólk
Hádegismatur – Fiskur í raspi, laukfeiti, kartöflur, sósa og salat
Kaffitími – Súkkulaði kaka og döðlubrauð
Kvöldmatur – Grillaðar pylsur!
Kvöldkaffi – Ávaxtabakkar
Ef það vakna upp einhverjar spurningar þá minni ég á símatíma forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Ísak Jón Einarsson, forstöðumaður.