Vatnaskógur 7. flokkur – Veisludagur

Nú er viðburðarríkum og skemmtilegum flokki í Vatnaskógi senn að ljúka. Síðasta heila daginn köllum við veisludag og fór hann vel fram þrátt fyrir töluverða rigningu. Lið foringja keppti við úrvalslið drengja í knattspyrnu og höfðu nauman sigur. Þá var úrslitaleikur í bikarkeppni knattspyrnu auk vítaspyrnukeppni. Um morguninn var keppt í Brekkuhlaupi, þar sem hlaupið er upp að hliði og aftur til baka, um 2 km leið. Eins og nafnið bendir til hlaupið upp brekkuna og svo niður á leið til baka. Þá var íþróttahúsið að sjálfsögðu opið auk báta og smíðaverkstæðis og ýmissa útleikja t.d. fánabolta sem er einskonar snertilaus amerískur fótbolti.

Veislukvöldverður hófst kl. 18:30 þar sem boðið var upp á snitsel, kartöflur, salat, gular og grænar baunir og brúna sósu og rann máltíðin vel ofan í drengina. Þaðan var haldið á veislukvöldvöku þar sem veitt voru verðlaun fyrir hin ýmsu afrek í flokknum, keppt til úrslita í Biblíuspurningakeppninni auk ýmissa skemmtiatriða og svo syngjum við mikið saman.

Það voru þreyttir drengir sem fóru að sofa um kl. 23.30.

Þegar þessi orð eru skrifuð eru drengirnir að pakka og gera sig klára fyrir brottför, svo tekur við dagskrá, hádegismatur kl. 12:30, síðan er lokastund og rúturnar fara héðan frá Vatnaskógi um kl. 14. Áætluð heimakoma á Holtaveg 28 er því um kl. 15:00.

Við biðjum um að þeir foreldrar sem sækja drengina sína hér í Vatnaskógi séu komnir ekki seinna en 13:45.

Að lokum þakka ég fyrir ánægjulegan og skemmtilegan flokk og vona að drengirnir fari glaðir heim með góðar minningar af dvölinni og vonandi sjáumst við aftur á næsta ári!

Þráinn Haraldsson forstöðumaður

Myndir úr flokknum má sjá hér – fleiri myndir munu svo bætast við frá deginum í dag.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum