Vatnaskógur 7. flokkur – Fyrsti dagur

Sunnudaginn 12. júlí komu 100 drengir hingað í Vatnaskóg. Fyrri hluti dags fór í að koma sér fyrir og kynnast staðnum en að því loknu tók við hefðbundin dagskrá.  Hér var hægur vindur og bátarnar opnir sem nutu mikilla vinsælda. Einnig var keppt í frjálsum íþróttum, knattspyrnu og borðtennis, auk ýmissa útileikja. Deginum lauk svo með kvöldvöku og flestir drengirnir voru sofnaðir um kl. 23.30.

Í dag er rigning og nokkuð kalt, en við látum það ekki á okkur fá. Dagskráin í Vatnaskógi er yfirleitt með nokkuð hefðbundnu sniði og lítur svona út.

8:30 – Vakning

9:00 – Morgunmatur

                Morgunstund

                Frjáls tími

12:00 – Hádegismatur

                Frjáls tími

15:00 – Kaffi

                Frjáls tími

18:00 – Kvöldmatur

                Frjáls tími

20:30 – Kvöldkaffi

                Kvöldvaka       

                Háttatími

Í frjálsum tíma er boðið upp á mismunandi dagskrá, bátar eru alltaf opnir er veður leyfir, auk þess er knattspyrna, frjálsar íþróttir, útileikir, smíðaverkstæði, íþróttahús, róleg stofa þar sem hægt er að spila og spjalla, og ýmislegt annað. Dagskráin stjórnast auk þess að veðri og aðstæðum. Drengirnir geta farið á milli svæða og tekið þátt í nokkrum viðburðum á hverri vakt. Hér ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Í matsalnum er setið á 8 borðum og mynda borðin hóp meðan á dvölinni stendur. Á hverju borði er borðforingi sem hefur umsjón með sínum hóp.

Nokkur orð um heimþrá

Í stórum hóp eins og hér er viðbúið að einhverjir finni til heimþrár, það er eðlilegt viðbragð við nýjum aðstæðum og að vera fjarri heimili sínu og foreldrum, fyrir suma í fyrsta skipti. Við leggjum áherslu á að vera til staðar fyrir drengina, gefa þeim færa á að tjá tilfinningar sínar og aðstoða þá við að finna sig í nýju umhverfi. Það eitt að gleyma sér er yfirleitt besta meðalið. Ef heimþráin heldur áfram höfum við ætíð samband við foreldra, oft er ákjósanlegt að drengurinn spjalli við foreldra sína og fái hvatningu að heiman. Flest heimþrármál leysast í farsælu samstarfi foreldra, starfsfólks og drengjanna sjálfra.

Hér eru örfáar myndir frá deginum.

Ef foreldrar vilja hafa samband er símatími milli kl. 11 og 12 í síma 4338959

Þráinn Haraldsson, forstöðumaður í 7. flokki

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum