
Í Vatnaskógi er fjörugur hópur drengja sem áttu góðan dag í gær, þrátt fyrir rigninguna. Að öðru leyti er hæglátt veður og bátarnir hafa verið opnir. Eftir kaffi var auk þess í boði að hoppa í vatnið en margir drengjanna hafa beðið eftir því. Eftir kalt vatnið er gott að fara í heitu pottana við íþróttahúsið.
Margir drengjanna hafa einnig tekið þátt í knattspyrnu, körfuboltamóti, frjálsum íþróttum, borðtennis, þythokký og margvíslegum leikjum í íþróttahúsi, auk útileikja. Í Birkiskáli er svo hægt slaka á, lesa og spila.
Matseðilinn mánudaginn 13. Júlí
Morgunmatur – morgunkorn og hafragrautur
Hádegismatur – kjötbollur með meðlæti
Kaffi – heimabakaðar kökur
Kvöldmatur – grjónagrautur og heimabakað brauð
Kvöldkaffi – kex og mjólk
Í dag heldur áfram að rigna en dagskráin gengur sinn vanagang og drengirnir finna fram regnjakkana sína.
Myndir frá flokknum má finna hér – nýjar myndir bætast við seinna í dag.
Kv. Þráinn Haraldsson, forstöðumaður 7. flokki