Vatnaskógur – 11. flokkur – Dagur 3

Dagurinn í gær

Dagurinn í gær var frábær sumardagur með sól og logni það getur ekki klikkað en auðvita koma þá „nokkrar“ flugur að heilsa uppá okkur. Drengirnir tóku þátt í hinni ýmsu dagskrá sem foringjarnir stóðu fyrir. Vatnafjör stóð hæðst þar sem bátaforingjar drógu þá sem vildu á bananabát á vatninu. Eins var Mr. Beast þraut í Íþróttahúsinu. Kvöldverðurinn í gær var kjúklingaborgari en ekki grjónagrautur eins og var fyrirhugað í gær.

Dagskrá dagsins í dag

Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.

  • Til hamingju Skógarmenn!

Í dag eins og alla daga byrjum við á morgunmat, fánahyllingu og morgunstund. Þetta verður þó sögulegur dagur þar sem við munum skoða sólmyrkva eftir kaffi og förum með rútu eins og við sögðum frá í fréttinni í gær. Við vonum að veðrið verði aðeins með okkur í dag svo við fáum að sjá vel sólmyrkan.

Matseðill dagsins


Morgunmatur – Brauð með áleggi, heitt súkkulaði og mjólk.
Hádegismatur – Grjónagrautur
Kaffitími – Skinkuhorn og súkkulaðikaka (nýbakað á staðnum)
Kvöldmatur – Stefnum á að grilla pylsur í tilefni sólmyrkvans.
Kvöldkaffi – Ávextir

Hér er myndasíða flokksins:https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Ársæll Aðalbergsson

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum