Unglingaflokkur – Komudagur

74 hressar stelpur lögðu af stað upp í Vindáshlíð. Eftir komuna var þeim raðað í herbergi og við tók frjáls tími þar sem var farið í íþróttakeppnir, brennó eða út í góða veðrið. Í kvöldmat voru svo pítur á boðstólnum. Um kvöldið skemmtu stelpunar sér í vinsæla leiknum Flóttinn úr Vindáshlíð. Eftir kvöldhressingu var farið upp í kirkju og þar sungum við lög og hlustuðum á hugleiðingu. Eftir að stelpurnar höfðu háttað sig hófst bænakonuleit þar sem stelpurnar fengu vísbendingar um hvar hana mætti finna. En fjörið var ekki búið þá og var haldið hressilegt náttfatapartý þar sem var dansað upp á borðum, sungin lög og leikin leikrit. Hópurinn er einstaklega ljúfur og góður og við hlökkum til komandi daga saman. 

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum