Lítill tími hefur gefist fyrir fréttaskrif en hér er það helsta frá síðustu dögum!
Á mánudag var Traitors-dagur, þá var stelpunum skipt í hópa og þær leystu fjölbreyttar þrautir saman. Í hádegismat voru kjúklingaborgarar og franskar. Á biblíulestri töluðum við um sjálfsmynd á tímum samfélagsmiðla og hvernig Jesú kennir okkur hvað skiptir mestu máli í fari fólks; kærleikur, samkennd og framkoma við aðra.
Eins og alltaf var spilað brennó og keppt í íþróttakeppnum og mikið föndrað og hlegið. Í kvöldmat var salatbar. Um kvöldið hélt spennan áfram í Traitors-leiknum. Eftir hugleiðingu söfnuðumst við saman úti við varðeld þar sem stelpurnar fengu stjörnuljós og við sungum saman lög.
Í gær var litakeppni í Vindáshlíð, stelpunum var skipt í fjögur lið sem hétu grænu glimmergíraffarnir, fjólubláu krossfiskarnir, pink panthers og bláu birnirnir. Hvert lið fékk hvítan bol sem þær skreyttu í sínum litum áður en keppt var í skemmtilegum þrautum. Meðal annars fylltu þær gosflösku með vatni með því að nota svamp og kepptu í brennó. Á biblíulestri sagði Pálína stelpunum söguna af Vindáshlíð, hvernig starfið byrjaði og þróaðist.
Í hádeginu var skyrbar þar sem hver og ein gat útbúið sína eigin skyrskál.
Í kvöldmat var lasanja, þegar allir voru saddir biðu rútur eftir hópnum. Ferðinni var heitið í sund í Hvalfirði þar sem við áttum sundlaugina að Hlöðum útaf fyrir okkur. Þegar komið var til baka í Hlíðina var búið að grilla pulsur. Bænakonur enduðu daginn í hverju herbergi eins og alla aðra daga. Stelpurnar fóru þreyttar en glaðar í rúmið og sofnuðu allar fljótt.
Nú er runninn upp veisludagur, þessir dagar hafa liðið hratt en mikið hefur nú verið gaman. Þetta er stórskemmtilegur hópur og gaman að fá að kynnast þessum stelpum.
Kveðja María og Pálína forstöðukonur