
Aldrei áður, hafa dagar liðið jafn hratt í Vatnaskógi og núna, að okkar mati.
Mikið var gaman hjá okkur. 7 dagar, uppfullir af ævintýrum á hverju horni.
Hér verður stiklað á stóru fyrir hvern dag hjá okkur, að frátöldum fyrsta deginum sem talað var um í fyrstu frétt.
Morguninn hófst með morgunstund og Biblíulestri þar sem krakkarnir fengu fræðslu um Biblíuna, uppbyggingu hennar og hvernig finna á texta í Nýja testamentinu. Því var næst haldið í íþróttahúsið í næstu þraut ,,Vatnaskógur Olympics” þar sem keppt var í reipitogi. Krakkarnir fengu að busla í vatninu, taka þátt í frjálsum íþróttum, m.a. 1500 m. hlaupi og langstökki án atrennu.
Vatnafjör á Eyrarvatni, búbblubolti, ,,Vatnaskógur Olympics” og fjallganga á Kambinn fóru fram þennan daginn. 16 krakkar, allt drengir, ásamt foringjum, réru yfir Eyrarvatnið eftir kvöldmat, settu bátana í land og gengu upp fjallið. Veður var ágætt, en mikil þoka og vindur á toppnum. Allt í allt mjög vel heppnuð ferð. Kvöldið endaði með kvöldvöku þar sem við héldum hæfileikakeppni og fengum að sjá mörg skemmtileg og frumleg atriði. Þá fengu krakkarnir kynningu á félagi sem heitir KSS. Hvetjum ykkur til að kynna ykkur þeirra frábæra starf, sem er fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára.
Úrslitin í Svínadalsdeildinni fóru fram, knattspyrnumóti Skógarmanna. Tvö öflug og jákvæð lið öttu þar kappi. Þá var haldin kökuskreytingakeppni í ,,Vatnaskógur Olympics” og krakkarnir fengu svo að borða sína köku í kaffinu daginn eftir. Seint um kvöld var í boði að mæta á leiksýningu í Gamla skála, þar sem poppvélin var sett í gang og áhorfendur nutu sýningar um þá félaga Harry Rögnvalds einkaspæjara og hans hundtrygga aðstoðarmann, Heimi Schnitzel. Fullt hús á þessari 70 mín. sýningu sem seint mun renna úr minningu þeirra sem tóku þátt í uppsetningu hennar. Áhorfendur skemmtu sér konunglega ef marka má viðbrögð þeirra.
Eftir fánahyllingu fórum við beint í ,,Escape Vatnaskógur,” leik, sem krakkarnir voru mikið búnir að biðja um. Þau sem þekkja til hans voru sannfærð um að hann færi fram að kvöldi til. Okkar fólk var fljótt að koma þeim á óvart með því að taka hann að morgni til. Í leiknum eiga krakkarnir að leysa þrautir og reyna að flýja Vatnaskóg áður en gæslan nær þeim og tekur þau úr leiknum. Það tókst einum að sleppa að þessu sinni, hann skilaði sér þó í hádegismat. Sólin lét sjá sig loksins, og norðaustan áttin mætti sterk til leiks um kvöldmatarleytið.
Við héldum af stað yfir hæðina, í átt að Hvalfirði þar sem úrvalslið krakkana í knattspyrnu keppti á móti ógnarsterku liði foringja. Leikurinn fór 1-1 við vindasamar aðstæður, en útsýnið yfir fjörðinn, það bætti allt saman. Við röltuðum svo yfir á Hlaðir þar sem við fórum í sund. Þegar við komum til baka á miðnætti biðu okkar grillaðar pylsur. Frábær dagur og frábært kvöld!
Veisludagur rann upp, hraðar en flestir áttu von á. Við héldum Skógarmannamessu um morguninn, enda sunnudagur og fengum til okkar hinn frábæra sr. Guðna Már Harðarson, sem leiddi messuna og sá um altarisgöngu. Hann hrósaði sérstaklega söngnum, en krakkarnir hafa verið mjög duglegir að syngja á morgunstundum og kvöldvökum alla vikuna. Brekkuhlaup var síðasta greinin í frjálsum, eins var síðasta þrautin í ,,Vatnaskógur Olympics” og sett var upp Wipeout braut eftir kaffi til að bleyta mannskapinn. Mikil sól og aðeins minni vindur en deginum áður, en bátarnir voru lokaðir síðustu dagana vegna vindáttar. Á veislukvöldvökunni afhentum við 30 bikara fyrir hinar ýmsu keppnir, sungum dátt, sáum leikrit frá Villiöndinni og horfum á Sjónvarp Lindarrjóður, sem mætti flokka sem ,,áramótaskaup Skógarins” þar sem við sýnum þeim myndbrot af þeim yfir flokkinn hjá okkur, í bland við leikin atriði. Kvöldið endaði með balli, þar sem okkar eini sanni Hálfdán úr VÆB mætti og tók nokkur lög. Óhætt er að fullyrða að aldrei hefur eins mikil dansgleði verið á balli hjá okkur í Unglingaflokki og núna. Það þurfti bókstaflega að sópa þeim út úr Birkiskála. Svo þurfti að sópa þeim aftur inn, þau sváfu víst öll í þeim skála. Fullt var út úr dyrum á kapellustund og ljóst að mörg sem hafa verið hér með okkur hafa áhuga á þeirri kristilegu fræðslu sem við bjóðum upp á. Það er blessun.
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.
Þau ykkar sem hyggjast sækja börn sín í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar barn sjálf ef það er skráð í rútuna heim, svo töskurnar fari ekki upp í rúturnar. Þau sem verða sótt í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til barnanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá Unglingaflokki 2026. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sýna okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við flokkinn getur þú sent tölvupóst á [email protected] eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK á Íslandi, sími 588 8899.
Með virðingu og þökk,
Gunnar Hrafn, Hreinn og Þórdís, forstöðufólk
og foringjar Unglingaflokks 2026.