Unglingaflokkur 2026 – Fyrsta frétt

Von er á 90 unglingum í sumarbúðirnar í Vatnaskógi þriðjudaginn 21. júlí og framundan er sjö daga skemmtidagskrá með öllu tilheyrandi. Reynslan er mikil þegar litið er til hversu margir þátttakendur hafa áður tekið þátt í starfi KFUM og KFUK og við hlökkum mikið til að taka á móti gömlum andlitum og kynnast nýjum.

Dagskrá fyrsta dags

Eftir hádegi og út daginn verður pökkuð dagskrá. Má þar nefna hópleiki og ýmsa aðra útidagskrá, báta (ef veður leyfir) og smíðaverkstæði, frjálsíþróttakeppni, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira, að ógleymdri Svínadalsdeildinni, knattspyrnumótinu fræga. Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, örsögu og hugleiðingu, ásamt leikriti frá okkar virta leikfélagi, Villiöndinni. Þá má ekki gleyma að minnast á hina virtu ,,Vatnaskógur Olympics” leika, sem hafa fest sig rækilega í sessi í unglingaflokki.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun þátttakenda eru:
Alice Viktoria Kent, Ásta Isabella Kent, Benjamín Jafet Sigurðarson, Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir, Guðmundur Tómas Magnússon, María Rut Arnarsdóttir, Nói Pétur Ásdísarson Guðnason, Sigmundur Freyr Hafþórsson og Sigríður Sól Ársælsdóttir.

Þeim til halds og trausts eru undirrituð, forstöðufólkið Gunnar Hrafn Sveinsson, Hreinn Pálsson og Þórdís Hafþórsdóttir.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir Ísak Jón Einarsson, matráður.
Innan hans sviðs starfa þær Karen Sól Halldórsdóttir, Lilja Ósk Sigurðardóttir, Selma Ósk Sigurðardóttir og Svanhildur Reynisdóttir.

Þá verða nokkrir vinnumenn á svæðinu í vikunni til að stilla upp fyrir hátíðina Sæludaga, sem verður hér um verslunarmannahelgina. 

Matseðill 

Dagur 1
Hádegisverður: Lasagne
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Skyr og bakað brauð
Kvöldhressing: Ávextir

Dagur 2
Morgunverður: Morgunkorn
Hádegisverður: Steiktur fiskur
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Grænmetisbuff
Kvöldhressing: Kex og mjólk

Dagur 3
Morgunverður: Nýbakað brauð og kakó
Hádegisverður: Kjötbollur
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Súpa og brauð
Kvöldhressing: Ávextir

Dagur 4
Morgunverður: Morgunkorn
Hádegisverður: Kjúklingaréttur
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Grjónagrautur
Kvöldhressing: Kex og mjólk

Dagur 5
Morgunverður: Nýbakað brauð og kakó
Hádegisverður: Fiskibollur
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Kjúklingaborgarar
Kvöldhressing: Ávextir og kex

Dagur 6
Morgunverður: Morgunkorn
Hádegisverður: Pasta
Nónhressing: Beint frá bakara
Kvöldverður: Grísasnitsel
Kvöldhressing: Kex og mjólk

Dagur 7
Morgunverður: Nýbakað brauð og kakó
Hádegisverður: Skógarmanna flatbökur

Nokkur orð um heimþrá

Í 90 manna hópi er ekki ólíklegt að einhver finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir okkur mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð barna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á börnum, geta þau komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir mörg börn í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þau hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri barnanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi barn þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla barnanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir þau og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar barnanna séu þess eðlis að þau eru einfaldlega ekki tilbúin til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Að lokum

Ekki munu birtast fleiri fréttir hér á síðunni fyrr en eftir veisludaginn okkar. Þar tökum við saman það helsta sem við gerðum í vikunni. Reglulega uppfærist myndasíðan okkar þar sem þið getið fylgst með. Þið fáið annars alla ferðasöguna frá einstöku sjónarhorni þann 27. júlí þegar rúturnar renna í hlað kl. 15:00. Í millitíðinni skuluð þið njóta kyrrðarinnar, ef einhver er… 

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðufólks á milli
11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Myndir úr flokknum munu birtast hér

Virðingarfyllst,
Gunnar Hrafn, Hreinn og Þórdís, forstöðufólk.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum