Sumarstuð í Vatnaskógi

Í sumar verður í fyrsta sinn boðið upp á nýtt og breytt fyrirkomulag í sumarbúðunum okkar í Vatnaskógi undir nafninu Sumarstuð dagana 5.–8. júní næstkomandi. Þessi sumarbúðaflokkur kemur í stað sérstakra sumarbúða fyrir börn með ADHD og skyldar raskanir sem hafa verið í Vatnaskógi og Ölveri um árabil.

Sumarstuð er ætlað öllum börnum á aldrinum 10–12 ára og eru börn með ADHD sérstaklega velkomin. Markmið búðanna er að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem hvert barn fær tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum.

Ein af breytingunum í ár er að sérbúðir fyrir stráka og stelpur verða sameinaðar í einn hóp, fyrir öll kyn. Við teljum að það geti skapað fjölbreyttar félagslegar aðstæður þar sem lögð er áhersla á samvinnu, vináttu, virðingu og jákvæða upplifun allra barna.

Dagskráin byggir á:

  • útivist og ævintýrum
  • leikjum og hreyfingu
  • félagsfærni og samvinnu
  • skemmtilegum verkefnum
  • rólegu og styðjandi umhverfi

Að búðunum kemur fagfólk með áratugareynslu af sumarbúðastarfi og vinnu með börnum og ungmennum, þar á meðal ADHD börnum. Mikil áhersla er lögð á:

  • skýra rútínu og fyrirsjáanleika
  • hlý og jákvæð samskipti
  • einstaklingsmiðaðan stuðning
  • að hjálpa börnum að finna styrkleika sína og upplifa öryggi í hópnum

Til að tryggja að öll börn fái gott rými og stuðning verður takmarkað pláss í flokknum. Skráning fer fram á sumarfjor.is

Ef einhverjar spurningar vakna eru foreldrar og forráðamenn hjartanlega velkomin að hafa samband við skrifstofuna.

Við hlökkum mikið til að taka á móti flottum hópi í Sumarstuð í sumar!

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum