Ölver- Unglingaflokkur – Dagur 5

Þennan morguninn var vakið með partý tónlist og voru stelpurnar frekar fljótar að koma sér á fætur og hefja daginn.

Eftir biblíulestur hefur verið fjölbreytt dagskrá hjá okkur í staðinn fyrir brennó en þennan morguninn kenndu foringjarnir stelpunum Gaga-bolta, þar sem herbergin kepptu á móti hvor annarri, en nýjung á svæðinu hjá okkur í ár er völlur fyrir Gaga-bolta.

Í hádegismat voru Tortillur með hakki og grænmeti.

Að loknum hádegismat fórum við í leik sem við köllum flóttan, en það var lítill kassi læstur með 5 lásum, stelpurnar þurftu að leysa þrautir og vísbendingar til þess að opna hvern lás, þær unnu í herbergjum og stóðu Skógarver uppi sem sigurvegarar.

Í kaffitímanum var boðið uppá smákökur og heit skinkuhorn sem runnu mjög vel niður.

 Í dag kíkti sólin í heimsókn til okkar og þá var ekkert í stöðunni annað en að henda upp slip n slide og bjóða öllum í heita pottinn.

Við fengum okkur grænmetisbuff og kúskús í kvöldmatinn áður en haldið var á kvöldvöku, Lindaver sá um skemmtiatriði og fengum við svo heimsókn frá KSS, KSS eru kristileg skólasamtök fyrir 15-20 ára, þau hittast á laugardagskvöldum á Holtavegi 28.

Þegar við vorum að syngja kvöldsönginn okkar kom Katniss úr Hunger Games inn og tjáði stelpunum að hana vantaði aðstoð við að finna Peeta og fleiri félaga en það væri verið að elta hana.

Það hlupu allar út í ævintýraleik sem endaði á kaffihúsakvöldi inni, þar fengu stelpurnar bananaskúffuköku og heitt kakó fyrir bænó.

Við fórum seint að sofa í gær og þegar ég er að skrifa þessa frétt eru bara nokkrar vaknaðar en við ákváðum í sameiningu að sofa lengur í dag, allar veða vaktar kl 10:30 þannig við verðum allar búnar að borða morgunmat fyrir Biblíulestur og dagskrá veilsudagsins.

Bestu Kveðjur úr Ölveri,
Lilja Maren, forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum