Ölver – Unglingaflokkur – Dagur 4

Þar sem við fórum seint að sofa fengu allar 30 mínútna útsof og var ræst enn og aftur með ljúfum tónum.

Eftir hefðbundna morgundagskrá fóru stelpurnar í Hunger Games leik eða eins og sumir þekkja hann „klemmuleikinn“ sem er eltingaleikur og vakti það mikla lukku.

Í hádegismat var boðið uppá kornflex kjúlla og kartöflur sem rann vel niður og fóru allar saddar og sælar í næsta dagsrkárlið en það voru hinir frægu Ölversleikar, þá er keppt í ýmis þrautum, í unglingaflokki gerum við smá öðruvísi og keppa öll liðin saman á fótboltavellinum, þar myndaðist skemmtilegt keppnisskap á milli liðanna.

Kaffitíminn var ekki af verri kantinum en fengu stelpurnar karamellulengjur og möndluköku.

Þegar kaffitíminn var að klárast tilkynntu foringjarnir að næst á dagskrá væri hæfiliekakeppni, skráningin fór hægt af stað en svo fengum við að sjá fullt af flottum og skemmtilegum atriðum.

Í kvöldmat voru pítur, það fannst stelpunum nú ekki leiðinlegt og borðuðu allar af bestu lyst áður en haldið var til kvöldvöku.

Einn foringjanna kenndi stelpunum dans og bað þær um að fara út á tröppur þannig það væri hægt að búa til TikTok af þeim dansa, en það var bara plat að því foringjarnir voru tilbúnir að hella vatni yfir stelpurnar sem endaði í vatnsstríði og kvöldpotti.

Inni í húsinu var svo boðið uppá te og slúður eða eins og við viljum kalla það „Tea time and tea time.“ Þegar allar voru komnar úr pottinum var tilbúin eðla og snakk fyrir alla í kvöldkaffi.

Hér voru allir í skýjunum eftir langan dag, það tók smá stund að koma ró á húsið það gekk og fengu stelpurnar að sofa aðeins lengur í morgun.

Bestu Kveðjur úr Ölveri,

Lilja Maren, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum