Þá er fyrsti heili dagurinn okkar hérna í Ölveri búinn og var hann heldur betur skemmtilegur.
Stelpurnar voru vaktar með tónlist og voru þær flestar fjótar á fætur, enda mikil spenna í hópnum. Þær mættu allar í morgunmat þar sem boðið var uppá serjós, kornflex, súrmjólk og hafragraut.
Samkvæmt Ölvershefð héldu allar stelpurnar út í fánahyllingu eftir morgunmat, gengu frá í herbergjunum sínum og mættu síðan á biblíulestur þar sem við sungum og ég sagði þeim söguna af Kristrúnu sem stofnaði Ölver, í lok stundarinnar var þeim tilkynnt að í þessum flokki yrði ekkert brennó vegna veðurs, en lítið vita þær að við ætlum í smá óvissuferð á degi 3.
Í hádegismat gæddum við okkur á Grjónagraut og brauði með ýmsum tegundum af áleggi.
Eftir hádegismat var hugguleg stund hjá okkur þar sem veðrið hefur örlítið verið að stríða okkur og stelpurnar ekki spenntar fyrir mikilli útiveru. Í boði var að perla, búa til armbönd og spila með foringjunum, en einnig fengu allar stelpurnar að gera tie dye á glænýjum Ölversvarning.
Í kaffitíma var boðið uppá Ölversbollur og skúffuköku með kremi áður en það var tilkynnt að við ætluðum næst í Top Model, en þá fá öll herbergin ruslapoka, hárnet og ýmislegt annað sniðugt til þess að hanna „outfit“ fyrir tískusýningu.
Næst á dagskrá fengu allar þær sem vildu að kíkja í heita pottinn okkar sem var mjög vinsæll þrátt fyrir veður.
Kvöldmaturinn var Hakk og Spagettí með hvítlauksbrauði sem rann mjög vel niður en við flýttum kvöldmatnum okkar um korter þannig að allar þær sem vildu gætu horft á leikinn Spánn-Frakkland.
Svo fórum við beint á kvöldvöku þar sem var mjög gaman og Skógarver sýndi okkkur fyrstu atriði vikunnar. Þegar kvöldvakan var að kárast mættu tveir gamlir kallar sem sögðu öllum stelpunum söguna „Móðir mín í kvíkví“, því fóru þær næst í gegnum draugagang Ölvers sem var mjög spennandi. Allar stelpurnar enduðu í matsalnum þar sem var í boði að lita og búa til armbönd, þær fengu sér banana og peru áður en allar græjuðu sig fyrir háttinn.
Síðan var haldið í háttinn sem gekk vel fyrir sig og var komin ró á húsið fyrir 1.
Það eru komnar myndir af gærdeginum inná myndasíðuna okkar.
Bestu kveðjur úr Ölveri,
Lilja Maren, forstöðukona