Ölver – 5. Leikjaflokkur, Dagur 2

Í gær vöknuðu stelpurnar snemma og tilbúnar í daginn. Eftir morgunmat var farið út í fánahyllingu og við sungum fánasönginn okkar. Á biblíulestrinum sungum við og lærðum að fletta upp í nýja testamentinu, og síðan var haldið út í daglegu brennó keppnina. Eftir hádegismat var hæfileikakeppni þar sem margar tóku þátt með fjölbreytt atriði og það var mjög mikið fjör. Í kaffitímanum fengu þær skinkuhorn og köku en síðan fengu þær að fara í heita pottinn okkar. Hvert herbergi fékk sinn tíma og á meðan voru foringjar með tónlist úti og við dönsuðum þrátt fyrir smá rigningu af og til. Á kvöldvökunni var annað herbergi sem sá um skemmtiatriðin og síðan var óvænt foringjaleikrit sem endaði með náttfatapartýi, en það var algert æði með dansi og sögu með íspinna.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum