Ölver – 5. Leikjaflokkur, Dagur 1

Í gær mættu stelpurnar spenntar upp í Ölver, og margar í fyrsta sinn. Við fengum skyr og pizza brauð í hádegismat eftir skemmtilegan könnunarleiðangur um svæðið. Við sýndum þeim öll þau útileiktæki sem eru hér, og á fótboltavellinum fórum við í allskyns leiki, meðal annars nafnaleiki til að kynnast. Síðan var þeim skipt í fjóra hópa og þær fengu það verkefni að búa til klæðnað úr plastpoka, hárneti, gúmmíhanska og slíku. Þetta endaði á tískusýningu þar sem dómararnir voru Elsa, Giljagaur og Grýla, og það var mikið fjör. Síðan voru hamborgarar í kvöldmatinn, og á kvöldvökunni var mikið sungið og eitt herbergi sá um skemmtiatriðin fyrir hinar stelpurnar. Að stundinni lokni var haldin bænakonuleit og þær þurftu að fara út í skóg að leita að sinni bænakonu. Hvert herbergi fékk lag til að syngja fyrir bænakonurnar þegar þær fundust. Ef þær fundu þá réttu, söng hún sama lag til baka. Síðan fengu þær ávexti og komu sér svo í ró.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum