Ölver- 4. Ævintýraflokkur, Dagur 4

Fjórði dagurinn hér í Ölveri byrjaði aðeins seinna en vanalega eftir mikið stuð kvöldið áður, stelpurnar voru vaktar um 9:30, fóru í morgunmat, næst var fánahylling, svo tóku þær til í herbergjunum sínum, fóru á biblíulestur og kepptu í Brennó.

Í hádegismatinn var grjónagrautur með smurðu brauði, stelpurnar voru mjög ánægðar með grautinn og borðuðu vel.

Eftir hádegismat var æsispennandi spurningakeppni og svo tilkynntum við stelpunum að seinna um daginn yrði hæfileikasýning. Þær hafa verið að biðja um hæfileikasýningu alla vikuna og fengu þær því góðan tíma til undirbúa sig.

Í kaffitímanum voru gómsætir kanilsnúðar og Ölvers- subway kökur. Stelpurnar voru hæstánægðar með þennan geggjaða kaffitíma.

Eftir kaffi var svo glæsileg hæfileikasýning. Stelpurnar ykkar eru ótrúlega hæfileikaríkar og það var mjög gaman að fylgjast þeim.

Í kvöldmatinn var hakk og spaghettí, sem þær borðuðu mjög vel af.

Eftir kvöldmat var svo seinasta hefðbundna kvöldvakan í þessum flokki, en í lok kvöldvökunnar hlupu foringjarnir inn með hátalara og í náttfötum til að tilkynna að það væri náttfatapartý!! Þá fóru stelpurnar og klæddu sig allar í náttföt. Það var mikið stuð !! Svo endaði náttfatapartýið og þá tók við kósy bíókvöld. Við horfðum á myndina Rio og stelpurnar fengu popp.

Stelpurnar lögðust því mjög þreyttar og sáttar á koddann eftir viðburðarríkan dag. Það var komin ró á húsið um miðnætti og allar sofnaðar fyrir kl 1.

Ég minni á að við komum heim á laugardaginn 4. júlí, rútan verður mætt kl. 15 á Holtaveg 28. Rútan leggur af stað úr Ölveri kl. 14, svo þær stelpur sem fara ekki með rútunni þarf að sækja fyrir kl. 14 og best að leggja bílnum ekki upp við húsið svo að rútan komist að:)

Myndir úr flokknum má finna hér https://flic.kr/s/aHBqjCXVWz

Bestu kveðjur úr Ölveri,

Kristrún Lilja- Forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum