
Þriðji dagurinn hér í Ölveri byrjaði á hefðbundinn hátt, stelpurnar voru vaktar kl. 9, fóru í morgunmat, næst var fánahylling, svo tóku þær til í herbergjunum sínum, fóru á biblíulestur og kepptu í Brennó.
Í hádegismatinn var grænmetisbuff með couscous og grænmetissósu. Það féll ágætlega í kramið hjá stelpunum.
Eftir hádegismat var Ölvers Top Model keppni. Hvert herbergi fékk plastpoka, tvo hanska, pappakassa, kaffifilter og pípuhreinsa. Þær áttu svo að velja eina úr herberginu til að vera „model“ og áttu svo að nota hlutina sem þær fengu til að búa til „look“ og klæða upp módelið. Svo þegar öll herbergin voru tilbúin þá var tískusýning, þar sem að öll módelin löbbuðu og sýndu þeirra „look“. Stelpurnar voru mjög hugmyndaríkar og módelin litu glæsilega út.
Í kaffitímanum var svo boðið uppá ljúffenga pizzusnúða og gómsæta súkkulaðiköku með bleiku kremi. Einn í flokknum átti afmæli, svo að sjálfsögðu var sungið fyrir hana í kaffitímanum og hún blés á kerti á kökusneiðinni sinni.
Eftir kaffi fóru þær og kepptu í GAGA ball og eftir það var ýmis frjáls dagskrá í boði. Einnig var boðið upp á að fara heita pottinn og sturtu, og svo var eitt herbergi sem undirbjó atriði fyrir kvöldvökuna.
Í kvöldmatinn var svo kornflex- kjúklingur með kartöflum og kokteilsósu. Þær voru hæstánægðar með kjúllann og borðuðu mjög vel.
Eftir kvöldmat var svo kvöldvaka og svo var Ævintýratuskuleikur. Í honum þá eiga stelpurnar að reyna finna stöðvar og klára þrautir. Ef þær náðu að klára þraut fengu þær eitt strik teiknað á hendina með andlitsmálingu. Til þess að vinna leikinn þurftu þær að ná sex strikum. En það gat verið erfitt því að svo voru svokallaðar tuskur að reyna að klukka þær og ef tuskurnar náðu þeim þá máttu þær þurrka af eitt strik. Þær skemmtu sér mjög vel, þrátt fyrir að grasið hafi verið smá blautt.
Eftir tuskuleikinn var svo búið að breyta matsalnum í kaffihús og boðið var uppá vöfflur og heitt kakó. Það var mjög kósý eftir amstur dagsins.
Í lok dags voru stelpurnar þreyttar og sofnuðu flestar um leið og þær lögðust á koddann.
Ég minni svo að lokum á símatíma milli 18-19 í síma 433-8860 og myndir úr flokknum má finna hér https://flic.kr/s/aHBqjCXVWz
Bestu kveðjur úr Ölveri,
Kristrún Lilja- Forstöðukona