Ölver- 4. Ævintýraflokkur, Dagur 2

Fyrsti heili dagurinn í Ölveri gekk ótrúlega vel og stelpurnar skemmtu sér konunglega. Þær voru vaktar um 9 og fóru í morgunmat. Eftir morgunmat er svo hefð í Ölveri að fara út og hylla fánann. Svo eftir fánahyllingu fara þær og taka til í herbergjunum sínum.

Næst fóru þær í biblíulestur, þar sem við syngjum saman nokkur lög og sögð hugleiðing. Á þessum biblíulestri sögðum við frá Kristrúnu Ólafsdóttur sem var stofnandi Ölvers og fórum yfir sögu Ölvers.

Eftir biblíulestur fóru stelpurnar í Brennó sem þær keppa í á hverjum degi. Þeim var skipt í sex lið og munu öll liðin keppa sín á milli, og í lok vikunnar mun það lið sem vann flesta leiki standa uppi sem Brennómeistararar Ölvers og keppa á móti foringjaliðinu.

Í hádegismatinn var píta með skinku og grænmeti, stelpurnar borðuðu ágætlega vel af því:)

Eftir hádegismat kepptu þær í svokölluðum Ölversleikum, þar sem þær tóku þátt í ýmsum þrautum eins og t.d. stígvélaspark og lautarhlaup. Herbergin kepptu saman og græjuðu sig allar í flotta hópbúninga og peppuðu hvor aðra áfram!

Í kaffinu voru gómsæt skinkuhorn og ljúffeng norsk tekaka með kremi sem féll vel í kramið hjá stelpunum.

Eftir kaffi þá gerðu stelpurnar allar listaverk á dúk. Hver og ein setti handafarið sitt með nafninu sínu í kringum handafarið hjá bænakonunni sinni. Það kom ótrúlega vel út og við hengdum svo dúkinn upp á vegg, læt mynd af dúknum fylgja fréttinni;) Svo fóru tvö herbergi að undirbúa atriði fyrir kvöldvökuna, einhverjar kíktu í heita pottinn og margar fóru út að leika.

Í kvöldmatinn voru svo fiskibollur með kartöflum og karrýsósu, þær borðuðu mjög vel af þeim:)

Næst var svo kvöldvaka þar sem tvö herbergi voru með atriði, mikið sungið og sögð hugleiðing.

Eftir kvöldvöku þá var svo kallaður Ævintýragangur sem er bara í Ævintýraflokkum. Þá fara stelpurnar um húsið á vit ævintýranna og hitta mismunandi ævintýrapersónur sem fá þær til að gera ýmsar þrautir. Þær fengu svo allar íspinna og foringjarnir léku fyrir þær fyndna sögu.

Stelpurnar voru því alveg smá þreyttar í lok dags og það voru flestar sofnaðar um miðnætti.

Ég minni svo að lokum á símatíma milli 18-19 í síma 433-8860 og myndir úr flokknum má finna hér https://flic.kr/s/aHBqjCXVWz

Bestu kveðjur úr Ölveri,

Kristrún Lilja- Forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum