
Í Ölver er mættur frábær hópur af skemmtilegum og hressum stelpum, ásamt frábæru og vel reyndu starfsfólki! Það er góð stemmning í hópnum og margar sem eru miklir Ölvers reynsluboltar sem eru að taka vel á móti þeim sem eru nýjar.
Þegar komið var upp í Ölver var byrjað á því að kynna stelpurnar fyrir staðnum, starfsfólki og helstu reglum. Næst var þeim svo skipt í herbergi, og var að sjálfsögðu tryggt að vinkonur væru saman í herbergi. Svo komu þær sér fyrir í herbergjunum og síðan var boðið upp á skyr og smurt brauð í hádegismat.
Eftir hádegismatinn var svo farið í gönguferð um útisvæðið okkar og teknir nokkrir samhristingsleikir til að kynnast betur stelpunum. Einnig var farið yfir reglurnar í Brennó sem við spilum á hverjum degi hérna í Ölveri.
Í kaffitímanum var svo boðið upp á dýrindis kryddbrauð og ljúffeng jógúrtkaka með súkkulaðibitum.
Eftir kaffi þá gerðu stelpurnar allar skilti með sínu nafni og skreyttu það. Svo settu þær skiltin á hurðina í sínu herbergi. Svo var í boði að fara í gaga ball, gera vinabönd og fara í heitapottinn. Langflestar voru úti að leika sér og skoða allt svæðið okkar.
Í kvöldmatinn voru kjötbollur með kartöflumús og brúnni sósu, stelpurnar borðuðu mjög vel og voru mjög ánægðar með matinn!
Eftir kvöldmat er svo alltaf svokölluð kvöldvaka hér í Ölveri, þar sem við syngjum saman, ýmis atriði og að lokum sögð stutt hugleiðing. Stelpurnar syngja ótrúlega fallega og mjög gaman að syngja með þeim.
Hér í Ölveri ríkir sú hefð að hvert herbergi fær sína bænakonu, þ.e. sinn foringja sem fer inn í herbergi til þeirra öll kvöld, fer í leiki, spjallar við þær, segir skemmtilegar sögur, syngur og hjálpar þeim að koma sér í ró.
Eftir kvöldvöku fóru stelpurnar að fá sér kvöldkaffi og voru orðnar mjög spenntar að fá að vita hver yrði bænakonan þeirra. En foringjarnir voru allir horfnir! Þeir höfðu allir hlaupið út í felur! Þá fengu stelpurnar vísbendingar frá forstöðukonunni til að hjálpa þeim að finna sína bænakonu og fóru út að leita. Þegar allar höfðu fundið sínar bænakonur, komu þær aftur inn í herbergin sín til að eiga notalega stund fyrir svefninn.
Mikil spenna var í hópnum í lok dags og fóru þær sáttar á koddann. Það var smá æsingur í húsinu til að byrja með, skiljanlega á fyrsta kvöldinu en það var komin ró á húsið rétt fyrir miðnætti. Nokkrar áttu erfitt með að sofna, en næturvaktin sat með þeim þangað til þær sofnuðu.
Hlakka til að kynnast þessum flottu stelpum betur og lenda í ýmsum ævintýrum með þeim!
Við birtum myndir daglega, þær má finna á þessum hlekk https://flic.kr/s/aHBqjCXVWz. Einnig vil ég minna á símatíma frá 18-19 í síma 433-8860
Bestu kveðjur úr Ölveri,
Kristrún Lilja- forstöðukona