lokafrétt 11 flokkur

Veisludagur 🎉

Í morgun vöknuðu stelpurnar sem hlíðarmeyjar – það gerist þegar stelpurnar eru búnar að gista í þrjár nætur. 🩵

Dagurinn byrjaði á úrslitakeppninni í Brennó og þetta var svakalega spennandi! En það var svo Grenihlíð sem stóð uppi sem sigurvegari. 🏆

Eftir Brennókeppnina fengum við steiktan fisk og kartöflur. Namm, það var svo gott! 😋

Eftir matinn fórum við inn í íþróttahús í marga skemmtilega leiki og það vakti mikla lukku. ❤️

Í kaffinu voru kanilsnúðar og karamellulengjur – namm namm, það var svo gott! 🤎

Eftir kaffi var komið að vinagangi, þar sem stelpurnar buðu vinkonum sínum upp á nudd, fléttur, naglalakk, tattú, steina í andlitið og fleira skemmtilegt. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt!

Stelpurnar fóru svo í fínu fötin sín og voru allar stórglæsilegar. ✨

Við fórum svo í Vefðu mjúka, sem er skemmtileg hefð. Eftir það fengum við pizzu í veislumat og stelpurnar borðuðu mjög vel! 🍕

Eftir matinn var komið að veislukvöldvöku, þar sem foringjarnir skemmtu stelpunum með stórskemmtilegum skemmtiatriðum. Stelpurnar hlógu og skemmtu sér svo vel. 🥳

Stelpurnar fengu svo að bursta í læknum og fóru sáttar og glaðar að sofa. 🩵

Brottfarardagur 🩵

Stelpurnar fengu að sofa aðeins lengur í morgun enda voru þær mjög þreyttar eftir fjörugan gærdag.

Það var komið að foringjabrennóinu þar sem foringjarnir kepptu á móti Grenihlíð. Stelpurnar stóðu sig svakalega vel og þetta var hörkukeppni – mjög spennandi og jafnt! 🔥

Núna eru stelpurnar að kveðja foringjana og klára að pakka.

Við leggjum af stað klukkan 14:00. 🚌

Hlökkum til að sjá ykkur á Holtavegi! 😊🩵

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum