Fyrstu dagarnir í 1. flokk

Veðurparadís og gleði

Dagur tvö er að kveldi kominn hér í Vindáshlíð, og við keppumst við að reyna að hægja á tímanum. Þetta líður alltof fljótt.

Hér er komin ró í húsið og flestar stelpurnar steinsofnaðar eftir frábæran dag. Í gærkvöldi, á fyrsta kvöldi flokksins, fengum við foringjarnir ágætis upphitun fyrir sumarið, þegar heimþrárfaraldur skók Hlíðina. Sem betur fer náði okkar færa og frábæra starfsfólk að koma öllum í ró á endanum, og þreyttar stúlkurnar steinsváfu í alla nótt. Kvöldið í kvöld var svo allt önnur ella og flestar þegar sofnaðar þegar þetta er skrifað klukkan 22.

Eins og víða á og í kringum höfuðborgarsvæðið var bongóblíða hér í Kjósinni í dag. Við þökkuðum þó fyrir vindinn sem fylgdi því bæði passaði hann uppá að okkur yrði ekki of heitt, og hann hélt líka lúsmýinu fjarri. Við erum því ekki farin að sjá nein bit af ráði – og vonum að elsku lúsmýið haldi sig frá okkur sem lengst.

Dagskráin er búin að vera þétt og skemmtileg frá því stelpurnar mættu til okkar í gær. Brennókeppnin er þegar komin vel á veg, en þar keppa herbergin á móti hvort öðru í riðlakeppni þar sem fjögur lið komast í undanúrslit og svo úrslit sem háð eru á veisludegi. Þá eru sjö af ellefu herbergjum búin að sýna leikrit á kvöldvöku, og flestar stelpurnar mjög duglegar að taka þátt í fjölbreyttum íþróttakeppnum sem íþróttaforinginn okkar býður uppá. Þá hafa stúlkurnar verið iðnar í vinabandagerð og föndri, en auðvitað höfum við fært allt slíkt út á tún í góða veðrinu og til dæmis var boðið uppá steinamálun í föndurstund í dag. Það komu ýmis glæsileg listaverk úr þeirri stund. Mikill metnaður er fyrir innanhúskeppninni, og margar stelpur sem keppast við að halda herbergjunum sínum hreinum og vel skreyttum.

Í dag héldum við í göngutúr og skoðuðum tvo fossa hér í nágrenni Vindáshlíðar, fyrst Pokafoss sem er bara hérna rétt hjá okkur, og svo var haldið áfram göngu alla leið að Brúðarslæðu, sem er um 20-30 mínútna gangur. Þar fengu stelpurnar að vaða og njóta sín í góða veðrinu, og nesti var borðað þar í náttúrufegurðinni.

Á Biblíulestrinum í morgun ræddum við um Biblíuna og æfðum okkur að fletta upp í henni. Við töluðum líka um Jesú sem millistykki á milli Guðs og manna, og skemmtilegar umræður mynduðust um hver Guð sé og hvaðan hann komi. Á hugleiðingu gærkvöldsins ræddum við um mikilvægi þess að koma vel fram við hvort annað, og hvernig gjörðir og orð geta skilið eftir sig ör. Í kvöld ræddum við svo um miskunnsama samverjann og hvernig við getum verið til staðar fyrir hvort annað. Hópurinn er ótrúlega virkur í umræðum, forvitinn og opinn að deila sínum upplifunum og hugmyndum. Það er frábært. Þær eru líka afskaplega duglegar að taka undir í söng, þó þær þekki sjaldnast laglínur laganna sem við erum að syngja. En hljómurinn batnar sannarlega með hverri endurtekningu á lagi.

Við hlökkum allar til að takast á við nýjan dag á morgun, útsofnar og ferskar, með sólarvörnina að vopni.

Þangað til næst,

Tinna Rós, forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum