Fyrsti dagurinn okkar í 11 flokk

Góðan daginn,

í dag mættu til okkar stór hópur af frábærum stelpum, sem voru svo spenntar og glaðar. Þær voru allar með það markmið að skemmta sér. Fjörið byrjaði strax í rútunni þegar maður heyrði þær byrja að kynnast.

Þegar við mættum í Vindáshlíð, byrjuðum við að raða þeim í herbergin og þær komu sér fyrir, það var gaman að sjá hvað þær voru fljótar að kynnast og eignast nýjar vinkonur.

Í kaffitímanum var boðið uppá bestu jógúrtköku í heimi og kryddbrauð sem getur ekki klikkað. Eftir það var komið að  skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá þar sem brennó keppnin var kynnt, við vorum með æfingarbrennó keppni og við komumst fljótt að því að það er mikið keppnisskap í hópnum. Einnig var fallegi skógurinn okkar vinsæll þar sem stelpurnar léku sér, svo er aparólan alltaf skemmtileg. Það var í boði að gera armbönd í setustofunni, íþróttakeppnir og margt fleirra. Í kvöldmatinn var lagsagna og hvítlauksbrauð, sem sló heldur betur í gegn. Eftir matinn var aftur smá frjáls tími þar sem var mikil gleði. Á kvöldvökunni voru herbergin með atriði , foringjarnir voru með leiki og svo auðvitað sungum við skemmtilegu lögin okkar. Stelpurnar fengu svo góðan tíma með bænakonunum sínum, núna er stelpurnar komnar í ró og margar sofnaðar.

Bestu kveðjur Kristín Forstöðukona.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum