
Veisludagurinn gekk prýðilega og mikil gleði var við völd. Eftir hefðbundin morgunverk og úrslitaleikina í Brennó var dýrindis plokkfiskur borinn á borð. Flestar borðuðu hann vel en auðvitað var passað upp á að allar færu saddar fra borði. Við fórum með stelpurnar í gönguferð að Brúðarslæðu sem er lítill aflíðandi foss í fallegum læk og þar óðu stelpurnar og léku sér.
Eftir kaffi hófst undirbúningur að vinagangi. Þá bjóða herbergin upp á góðverk fyrir hinar stelpurnar og hægt er að ganga á milli og þiggja þessi góðverk. Meðal annars sem var boðið upp á var nudd, naglalakk, hárgreiðsla, teiknaðar myndir og margt fleira sem stelpurnar segja ykkur frá þegar þær koma heim. Messan í litlu Hallgrímskirkjunni okkar var dásamleg og mikið sungið. Pizzaveisla tók svo við, myndatökur og almenn gleði. Kvöldvakan var í boði foringja og hlógu stelpurnar mikið þegar þær stigu á stokk með alls kyns atriði.
Nú er kominn nýr dagur og stelpurnar að vakna. Við tekur að pakka niður, heimsækja kirkjuna aftur og hafa kveðjustund með bænakonum. Við leggjum svo af stað úr Hlíðinni um kl. 14:00 svo það er gott að vera komin á Holtaveginn um 14:30.
Hlökkum til að sjá ykkur,
kær kveðja,
Álfheiður forstöðukona