Jæja, dagur 3 komin og farinn í Hlíðinni.
Eftir ljúffengan morgunmat fóru stelpurnar og sungu fánann upp og þaðan lá leiðin beinustu leið upp í kirkju. Við ákváðum að nýta kirkjuna í biblíulestur dagsins þar sem umræðuefnið var kærleikurinn, bæði til annarra og það sem mikilvægara er, til síns eigin. Við ræddum um hversu mikilvægt það er að læra að elska sjálfan sig eins og maður er, til þess að geta elskað aðra. Við ræddum um samfélagsmiðla og hvernig margt sem gerist á þeim getur skákað kærleiksboðskapnum. Stelpurnar voru mjög duglegar að hlusta og þeim fannst þetta viðfansefni mjög áhugavert (og voru mikið að spá í afhverju ég valdi að tala um þetta við þær). En ég útskýrði bara vel að kærleikurinn er eitt af grunngildum okkar sem manneskjum og að stelpurnar þurfa að fara varlega með þessa nýju tækni sem er alltaf í þróun.
Eftir áhugaverðann biblíulestur héldu svo áfram brennókeppnir, föndur og fleiri íþróttakeppnir. Íþróttakeppnir morgunsins voru tvær, annarsvegar stigahlaup á eins skömmum tíma og þær gátu í stiganum niður í kvöldvökusal og hins vegar keppni um að klæða sig í kuldagalla eins hratt og þær gátu. Mörgum er fúlasta alvara með að vinna þessar keppnir og vilja gera aftur og aftur til þess að reyna bæta tímana 🙂 Í hádegismat var svo boðið upp á steiktann fisk og kartöflubáta. Þær voru mjög duglegar að borða !!
Útivera dagsins var ekki af verri endanum, en stelpurnar fóru í göngu að Brúðarslæðu sem er skemmtilegt og fallegt svæði í ca 1,5km fjarlægð frá húsinu. Þar gátu þær vaðað í vatninu og leikið sér og allar skemmtu sér konunglega. Eftir gönguna biðu þeirra svo volgar súkkulaðibitakökur og sjónvarpskaka 🙂
Frjálsi tíminn fór svo í áframhaldandi skemmtilegheit í brennó, föndri og íþróttakeppnum. Í þetta skipti var íþróttakeppnin kraftakeppni þar sem stelpurnar héldu 2L flöskum útrétt eins lengi og þær gátu. Þær eru algjörir snillingar 😉 Í kvöldmat var svo boðið upp á hlaðborð með pastasalati, þar sem allir gátu búið til sína eigin skál….pasta, pulsur, salat, grænmeti, sósur og fleira.
Í kvöldvöku fór fram hin vinsæla keppni Viltu vinna milljón, sem er spurningakeppni milli einstaklinga í herbergjum. Það var æsispennandi keppni og mun sigurvegarinn fá viðurkenningu á veislukvöldi. Eftir kvöldvöku fengu stelpurnar ávexti og síðan fóru þær yfir í hugleiðingu. Í hugleiðingu kvöldsins var lesin saga sem innihélt boðskapinn um að þótt einhvað líti ómögulega út að þá þarftu að hafa trú á að allt gangi vel. Sem er mikilvægt mottó fyrir ungar stelpur að hafa í lífinu meðan þær þroskast. Við reyndum að koma stelpunum hratt inní herbergi í „háttinn“ því það sem þær vissu ekki var að framundan var hið fræga NÁTTFATAPARTÝ.
Eftir að stelpurnar höfðu bustað tennur og græjað sig í háttinn, komu foringjar hlaupandi eftir göngunum og sungu : hæ hó jibbí jei, það er komið náttfatapartý. Stelpurnar hlupu þá allar inn í matsal, uppá borð og sungu og dönsuðu nokkur vel valin lög með foringjum. Síðan færðu þær sig inn í setustofu og heyrðu söguna um hann ULE, sem er alltaf jafn skemmtileg saga (látið stelpurnar endilega segja ykkur frá ULE). Síðan komu nokkrir geggjaðir karakterar í hina frægu DJÚPU LAUG, sem var skemmtilegur leikþáttur sem endaði með því að allar stelpurnar fengu frostpinna. Til að róa þær niður eftir allt stuðið, las ég fyrir þær fallega sögu á meðan þær kláruðu ísinn.
Ótrúlega skemmtilegur dagur á enda, og ekki var verri dagur sem beið þeirra í morgun. En í dag er BARBIE þema í Hlíðinni, hlakka til að skrifa um bleika barbie daginn okkar á morgun 🙂
Kíkið endilega á myndasíðuna okkar.
kær kveðja úr Hlíðinni fríðu
Marín Hrund forstöðukona