dagur 3 🩷

 Góðan og blessaðan daginn!

Þrátt fyrir hlýtt veður var mikil rigning í dag. Hún náði þó alls ekki að setja strik í reikninginn hjá okkur og dagurinn var fullur af gleði, leikjum og góðum samverustundum.

Stelpurnar vöknuðu klukkan níu eftir skemmtilegt náttfatapartý í gærkvöldi. Þær voru eðlilega svolítið þreyttar eftir allt fjörið, en fljótlega var lífið og gleðin mætt á sinn stað.

Í biblíulestri dagsins ræddum við gullnu regluna og hversu mikilvægt það er að bera virðingu fyrir öðrum og koma fram við fólk eins og við viljum að það komi fram við okkur. Í framhaldinu spjölluðum við um vináttu og hvað það þýðir að vera góð vinkona. Við tókum svo vel undir í söngnum og sungum öll okkar uppáhaldslög af miklum krafti.

Brennókeppnin hélt áfram, en í dag fengu stelpurnar það verkefni að teikna mynd af Vindáshlíð. Það leynast sannarlega margar efnilegar listakonur í hópnum og það verður sannkölluð áskorun að velja sigurmyndina.

Í hádeginu fengum við ljúffengar kjötbollur með kartöflumús og sósu, sem runnu vel ofan í svangar stelpur.

Eftir hádegismatinn var komið að Amazing Race. Stelpurnar unnu saman í hópum, fóru á milli stöðva og leystu fjölbreyttar og skemmtilegar þrautir. Samvinnan var til fyrirmyndar og það var gaman að fylgjast með þeim hvetja hver aðra áfram.

Í kaffitímanum sló bakarinn okkar, Messi, heldur betur í gegn. Hún galdraði fram dásamlegt bananabrauð og einstaklega góða súkkulaðiköku sem hvarf af diskunum á augabragði.

Eftir kaffið hélt brennókeppnin áfram. Nokkur herbergi eru nú fallin úr leik, en það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað stelpurnar standa vel saman og hvetja þær sem enn eru í keppninni.

Að venju var nóg um að vera. Íþróttakeppnirnar voru í fullum gangi, foringjarnir fléttuðu fallegar fastafléttur, vinaarmbönd voru búin til og alls konar skemmtileg samtöl áttu sér stað um allt milli himins og jarðar.

Í kvöldmatinn fengum við skyr og nýbakað, dúnmjúkt brauð sem vakti mikla lukku.

Á kvöldvökunni sýndu síðustu herbergin atriðin sín. Við fengum að njóta dansa, leikrita og skemmtilegra leikja. Það er alltaf jafn gaman að sjá hvað hugmyndaflugið er fjölbreytt og hversu ólík atriðin eru hvert öðru.

Þegar leið á kvöldið fór þreytan að segja til sín eftir viðburðaríkan og skemmtilegan dag. Um klukkan tólf var komin ró á húsið og allar sofnuðu sáttar eftir enn einn frábæran dag í Vindáshlíð.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum