
Góðan og blessaðan daginn!
Gleðin heldur áfram hér í Vindáshlíð!
Stelpurnar voru vaktar klukkan 9 í morgun og hófu daginn á góðum morgunmat. Að honum loknum var biblíulestur þar sem ég sagði þeim söguna um talenturnar. Í kjölfarið spunnust skemmtilegar umræður um hæfileika og það er óhætt að segja að stelpurnar ykkar séu einstaklega hæfileikaríkar.
Eftir biblíulesturinn tók við fjölbreytt dagskrá með brennókeppni, föndri, íþróttakeppnum og armbandagerð í setustofunni. Í hádeginu var boðið upp á plokkfisk sem sló heldur betur í gegn.
Seinnipartinn var gengið að Pokafossi þar sem foringjarnir sögðu stelpunum sögur af fossinum. Í kaffinu var svo boðið upp á sjónvarpsköku og nýbakaðar brauðbollur. Messí bakarinn okkar heldur áfram að vera í miklu uppáhaldi hjá stelpunum.
Það hefur verið mikið líf utandyra í dag. Stelpurnar hafa leikið sér í aparólunni, á fótboltavellinum og í skóginum og notið þess að vera saman. Um kvöldið galdraði Karen ráðskona fram geggjuðum hamborgurum sem vöktu mikla lukku.
Á kvöldvökunni var komið að næstu herbergjum að sýna atriði og auðvitað sungum við líka skemmtilegu Vindáshlíðarlögin okkar.
Eftir kvöldvökuna fengu stelpurnar að bursta tennurnar í læknum, sem er gömul og skemmtileg hefð hér í Vindáshlíð. Þegar þær voru síðan komnar upp í herbergi og héldu að dagurinn væri á enda gerðist eitthvað óvænt. Foringjarnir mættu skyndilega í náttfötum, með málningu í framan og klósettpappír í hárinu og kölluðu: „HÆ HÓ JIBBÍ JEI, ÞAÐ ER KOMIÐ NÁTTFATAPARTÝ!“
Það vakti gríðarlega lukku! Við dönsuðum, fórum í alls konar skemmtilega dansleiki, foringjarnir sýndu atriði og að sjálfsögðu endaði kvöldið á ís.
Annar dásamlegur dagur að baki hér í Vindáshlíð. Við hlökkum til að segja ykkur frá ævintýrum morgundagsins!