
17.7
Eftir hádegismatinn kom sólin, og stelpurnar voru heldur betur duglegar að nýta góða veðrið. Þær skelltu sér í göngu að Brúðarslæðu, og fengu að vaða. Eftir það var kominn kaffitími Kristín flotti bakarinn okkar bar búin að gera dúnmjúka súkkúlaðiköku og bananabrauð. Þá var komið að frjálsum tíma, þar sem stelpurnar fóru út í fótbolta, brennó, íþróttakeppnir, og föndur.
í kvöldmatinn var hamborgari sem sló heldur betur í gegn. Í kvöldvöku voru herbergin með atriði og þar á eftir gerðu þær kókoskúlur. Stelpurnar fengu að bursta í læknum, það er alltaf jafn mikið sport og extra skemmtilegt í svona góðu veðri eins og var í gær.
Stelpurnar fóru svo í ró inná herbergin sín…. eða það héldu þær, þá kom flotti foringjahópurinn okkar fram syngjandi og dansandi, það er komið náttfatarparty.
Í náttfatapartýinu var mikið fjör, það var dansað uppá borði, foringjarnir voru með skemmtiatriði sem öllum fannst mjög fyndið, og það endaði svo á að þær fengu ís á meðan las ég sögu fyrir þær. Þær fóru svo aftur í alvöru kósýstund inná herbergjunum sínum.
18.7
Góðan og blessaðan daginn, gleðin heldur áfram hér í Vindáshlíð. Það er svo gaman að fá að sjá þær læra lögin okkar og kynnast fallegu náttúrunni hér í kring. Stelpurnar vöknuðu kátar og voru mikið að tala um hversu gaman það hafði verið kvöldið áður í náttfatapartýinu okkar.
Eftir morgunmatinn var frjáls tími, þar sem stelpurnar voru mikið í Brennó, föndrið var á sínum stað, þar sem stelpurnar voru lita og mála, það vakti mikla lukku. Innanhúskeppnirnar eru líka á sínum stað, þær eru svo duglegar að taka þátt í dagskránni.
Í Hádegismatinn var steiktur fiskur og franskar sem rann heldur betur vel niður. Eftir matinn fóru stelpurnar í ratleik.
Í Kaffinu var kryddbrauð og sjónvarpskaka. Eftir kaffitímann var stöppuð dagskrá, brennó keppnin, íþróttakeppni .. Í kvöldmatinn var skyr með ávöxtum og súkkúlaði, það er alltaf jafn vinsælt. Eftir kvöldmatinn var komið að kvöldvöku, þar sem herbergin voru búin að æfa atriði og sýndu stelpunum. Það var svo gaman að sjá hvað þær voru hugrakkar að standa uppi á sviði og tala fyrir framan hópinn. Eftir kvöldkaffið var komið að bænó sem er svo notarleg stund sem stelpurnar eiga með bænakonunum sínum. Þessi tími er í miklu uppáhaldi hjá þeim, þá eru settar fléttur í hárið, spjallað, sagðir brandarar, og rætt hvað þeim fannst skemmtilegast yfir daginn.
Það var komin ró í húsið fyrir miðnætti, stelpurnar voru orðnar þreyttar. Enda frábær dagur að baki.
Bestu kveðjur
Kristín Björt