Í gær komu 84 spenntar stelpur í Hlíðina fríðu í fyrsta ævintýraflokk sumarsins. Við komu fóru þær allar beint inn í matsal þar sem við fórum yfir reglur og plan dagsins. Í kaffinu var boðið uppá volga jógúrtköku og kanillengjur sem runnu ljúft niður hjá öllum. Eftir kaffið héldum við mikilvæga brunaæfingu og voru stelpurnar allar til fyrirmyndar. Í útiveru eftir kaffið byrjuðu æfingaleikir fyrir brennókeppnina, aðeins til að kynna öllum fyrir hvernig brennóið virkar í Vindó. Á sama tíma fór líka fram íþróttakeppni sem er gömul en góð, hið fræga húshlaup. Í henni hlaupa stelpurnar í kringum húsið okkar á eins stuttum tíma og þær geta. Íþróttakeppnirnar eru eins misjafnar og þær eru margar og hér geta allir keppt því keppnirnar eru allskonar(og oft hafa ekkert með íþróttir að gera). Veðrið lék aldeilis við okkur og flestar ef ekki allar stelpurnar nýttu frjálsa tímann í útiveru.
Í kvöldmat fengu stelpurnar svo grjónagraut og lifrarpylsu.
Í kvöldvöku fóru stelpurnar út í kvöldsólina og í ratleikinn Amazing race. Í honum hlaupa þær á milli stöðva og vinna ákveðin verkefni. Það er alltaf jafn gaman að heyra hlátrasköllin út um gluggann og heyra hvað þær eru að skemmta sér vel.
Eftir kvöldvöku fengu stelpurnar smá kvöldhressingu áður en við settumst inn í setustofu í hugleiðingu kvöldsins. Við hlustuðum á fallega sögu um það að gefast ekki upp. Ræddum það að þótt hlutirnir virðast stundum ómögulegir að þá er mikilvægt að hafa trú á sjálfri sér og halda áfram.
Eftir hugleiðingu fengu stelpurnar að fara út í læk að bursta tennurnar, við nýtum góða veðrið meðan það er. Í lok kvöldsins fór fram svokölluð bænakonuleit, en það er alltaf spennandi þegar herbergin fara á milli starfsfólks sem blað af staðreyndum og reyna að komast að því hver er þeirra bænakona. Þegar herbergin hafa fundið sína bænakonu fer hún með þeim inn í sín herbergi og eiga þær rólega stund saman með spjalli og bænum.
Í dag vöknuðu stelpurnar svo við HÆ HÓ JIBBÍ JEI og ætlum við að fagna þessum frábæra þjóðhátíðardegi okkar hér í Hlíðinni í dag. Margt spennandi og skemmtilegt framundan.
Minni á að kíkja á myndasíðuna, þar fara að streyma inn myndir 🙂
Kærleikskveðja úr Hlíðinni fríðu
Marín Hrund forstöðukona