Annar geggjaður dagur liðinn og hann var ekkert slor. Stelpur voru vaktar inn í Barbieland því í dag var þema dagsins BARBIE. Allskonar karakterar úr barbie kíktu við í dag með allskonar leikþætti, við hittum margar Barbínur, marga Ken, Alan, Gloriu og fleiri. Í hverjum matartíma fór svo fram leikþáttur um líf Barbie og Ken, sem átti sér alltaf framhald inn í næsta matartíma. Öllum leikatriðum fylgdi líka söngur og tónlist, þetta sló aldeilis í gegn. Fyrir utan það að vera hafa gaman var markmiðið líka að koma þeim boðskap í gegn til stelpnanna að stelpur eru nóg, eins og boðskapur Barbie myndarinnar er, að Barbie þarf ekki Ken.
Eftir morgunmat fóru stelpurnar út að fána og þaðan í biblíulestur með forstöðukonu og í dag var viðfangsefnið VINÁTTA. Við ræddum um mikilvægi vináttunnar, hvort það sé nauðsynlegt að eiga vini og hvernig maður á að vera sem vinur. Ég sagði stelpunum svo frá tveim vinum sem stofnuðu fyrirtæki saman sem hannaði teiknimyndapersónur, meðal annars Tomma og Jenna. Í framhaldi ræddum við um hvort þeir væru vinir og hvernig vinir lenda stundum í ósætti. Vináttuumræðan tengdist líka inn í Barbie-þemað því í Barbielandi eru ALLIR vinir. Þær eru svo duglegar að taka þátt í umræðum og eru hreinlega bara til fyrirmyndar 🙂 🙂
Eftir biblíulestur fóru fram nokkrir brennóleikir og íþróttakeppnin PLANKI eins lengi og þær gátu. Í hádegismat var boðið upp á kjúklingaborgara og franskar, það getur náttúrulega aldrei klikkað!
Í útiveru dagsins fór fram rótgróinn en stórskemmtilegur leikur sem heitir FLÓTTINN. Það er í rauninni bara eltingaleikur, þar sem foringjar elta stelpurnar og reyna að ná þeim. Ef þeim er náð fylgir foringinn þeim í fangelsi og lætur þær gera allskonar þrautir. Í síðdegiskaffi var boðið upp á möndluköku (auðvitað bleika köku í tilefni dagsins) og kanillengjur!
Seinni partinn fóru fram fleiri brennóleikir og íþróttakeppnirnar voru gerðar í stíl við þema dagsins. Annarsvegar var 90* keppni upp við vegg í boði KEN og hið fræga stígvélaspark í boði Barbie, nema það var auðvitað HÆLASKÓASPARK. Í kvöldmat fengu stelpurnar lasagne og hvítlauksbrauð. Það virðist vera alveg sama hvað ráðskonan eldar fyrir stelpurnar, það er allt borðað upp til agna. Enda þarf orku til að lifa svona mikla dagskrá af 🙂
Í kvöldvöku fór fram vinsæla keppnin Vindáshlíð top model, en þar eru herbergin saman í liði og útbúa flottasta kjólinn/fötin úr ruslapokum og böndum. Það er alltaf jafn gaman að fylgjast með hugmyndafluginu þegar þær byrja að ræða hvernig lokaútkoman á að vera. Og litlu kjólarnir sem voru búnir til úr einungis ruslapokum, framtíðar hönnuðir hér í húsi 🙂
Eftir kvöldvöku fengu stelpurnar ávexti og í hugleiðingu heyrðu þær af Sakkeus, sem var tollheimtumaður sem sveik og stal af öðrum peningum. Þrátt fyrir það vildi Jesú hitta hann og eyða með honum deginum, sem gerði aðra borgara reiða. Við ræddum um fyrirgefningu og hvernig tilfinningin er að bæta það sem þú gerðir rangt. Enduðum svo hugleiðinguna á smá peppræðu um konur í stjórnarstöðu á Íslandi og hvernig við konur getum ALLT sem við viljum.
Endilega kíkið á myndir úr flokknum 🙂
https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72177720334278683/with/55345603811
Í dag vöknuðu stelpurnar svo á VEISLUDEGI og framundan er sannkallaður gleðidagur í veðurblíðunni 🙂
Kveðja úr Hlíðinni fríðu
Marín forstöðukona