
Frábær dagur að kveldi kominn og allir löngu komnir í ró.
Eftir morgunmat og fánahyllingu hittumst við allar í kvöldvökusalnum og áttum saman góða stund við söng og spjall. Við héldum áfram að ræða um fyrirmyndir og mikilvægi þess að velja sér góða fyrirmynd sem kemur vel fram og er sönn.
Brennó var á sínum stað og styttist nú í úrslitin í því móti. Þegar allar voru búnar að gæða sér á kjötbollum og kartöflumús var haldið út í skemmtilegan leik þar sem stelpurnar leystu ákveðin verkefni á nokkrum stöðvum, söfnuðu stigum en þurftu að passa að lenda ekki í klóm foringja sem gátu haft af þeim stig. Veðrið hélst nokkuð þurrt meðan á leiknum stóð svo við blotnuðum ekkert að ráði.
Það er svo gaman að sjá hve vel stelpurnar eru farnar að blandast, þær eru ekki eins fastar í sínum vinkvennahópi lengur og eru óðum að tengjast betur og mynda ný vinatengsl. Þær eru mjög ræðnar og duglegar að koma til okkar foringjanna og ræða málin við okkur.
Í kvöld var kósý bíókvöld með poppi og öllu tilheyrandi. Það mæltist vel fyrir. Eftir kvöldhugleiðingu máttu þær bursta tennurnar í læknum en það er alltaf sívinsælt. Þegar allar voru komnar inn á herbergin sín mættu foringjarnir með galsa og buðu öllum í náttfatapartý í matsalnum þar sem dansað var uppi á borðum. Mikil gleði og stemmning. Eftir það fengu stelpurnar ís og hlustuðu á sögu áður en þær fóru aftur inn í herbergi ásamt bænakonunum. Það voru því þreyttar en glaðar stelpur sem lögðust á koddann í kvöld og voru fljótar að sofna.
Á morgun er svo síðasti heili dagurinn okkar og það verður margt um að vera.
Hlý kveðja héðan,
Álfheiður forstöðukona