Ævintýraflokkur II – Önnur frétt

Skógarmenn

Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.

Til hamingju Skógarmenn!

Dagskráin í fullum gangi

Það er sannkallað líf og fjör í Vatnaskógi þessa dagana, bátarnir eru ávalt vinsælir, smíðaverkstæðið iðar af sköpunargleði og íþróttahúsið nýtur mikillar aðsóknar. Gaman er að sjá hversu vel drengir nýta sér fjölbreyttu dagskrána sem boðið er upp á.

Eftir hádegismat býðst þátttakendum að taka þátt í Vatnafjöri þar sem tuðran er fest við mótorbát og brunað um Eyrarvatn, vinsæll og spennandi dagskráliður sem margir bíða spenntir eftir. Að loknum kaffitíma bjóðum við upp á búbblubolta á knattspyrnuvellinum, allt þetta til viðbótar við hefðbundna dagskrá dagsins.

Rigningin hefur verið blaut en drengirnir láta það ekkert á sig fá. Framundan í dag og næstu daga má gera ráð fyrir eitthvað meira af rigningu en hagstæðri vindátt. Svo lengi sem hægt er að hafa bátana opna þá er ég sáttur.

Matseðill

Þriðjudagurinn 7. júlí
Morgunmatur – Morgunkorn, hafragrautur og súrmjólk
Hádegismatur – Fiskur í raspi, laukfeiti, kartöflur, sósa og salat
Kaffitími – Pizzasnúðar, kókoskúlur og jógúrtkaka með súkkulaðibitum
Kvöldmatur – Grillaðar pylsur!
Kvöldkaffi – Ávaxtabakkar

Miðvikudagurinn 8. júlí
Morgunmatur – Rjómalagað kakó, nýbakað brauð og allskonar álegg
Hádegismatur – Kjötbollur, kartöflumús og sósa
Kaffitími – Kaka, bananabrauð og smákaka
Kvöldmatur – Grjónagrautur og nýbakað brauð
Kvöldkaffi – Kex og mjólk

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum