
Skemmtilegur dagur að kveldi kominn sem hófst á morgunmat, fánahyllingu og biblíulestri. Í dag æfðum við okkur aðeins að fletta upp í Nýja testamentinu og ræddum svo um fyrirmyndir. Við veltum fyrir okkur yfir hverju fyrirmynd þarf að búa, hvort við eigum fyrirmyndir og eins hvort við séum fyrirmyndir fyrir einhverja. Stelpurnar voru mjög virkar í umræðum og margar deildu með okkur hinum hver eða hverjar þeirra fyrirmyndir eru.
Brennókeppnin hélt áfram og eins var föndurherbergið opið en í dag var goggakeppni fyrir þær sem það vildu. Íþróttakeppnir dagsins fólust annars vegar í broskeppni þar sem keppt var um breiðasta brosið og hins vegar stigahlaupi þar sem tími var tekinn á því hve fljótt þær gátu hlaupið upp og niður stiga hér innanhúss.
Eftir hádegi var farið í skemmtilegan leik sem kallaður er Flóttinn úr Vindáshlíð. Þar reyndu stelpurnar að hlaupa undan foringjunum sem litu ekki frýnilega út og voru karakterarnir þeirra síður en svo kátir. Stelpurnar þurftu að fylgja ýmsum vísbendingum til að bjarga sér frá þessum lítt aðlaðandi foringjum en sem betur fer breyttist þetta nú allt til hins betra að leik loknum og foringjarnir urðu sjálfum sér líkir aftur.
Maturinn hér er ekki af verri endanum, í hádegismat var boðið upp á skyr og nýbakað brauð, kaffihressingin var gulrótarkaka og bananabrauð og í kvöldmat fengum við svo pítur.
Á kvöldvökunni var hæfileikakeppni þar sem þær sem vildu stigu á stokk, léku leikrit, dönsuðu og voru með uppistand svo eitthvað sé nefnt. Þar voru miklir hæfileikar á ferð og mjög gaman að sjá hvað þær eru margar hverjar ófeimnar að stíga á stokk.
Við hlökkum svo til áframhaldsins og hvílumst vonandi allar vel í nótt.
Kær kveðja úr Vindáshlíð,
Álfheiður forstöðukona