Ævintýraflokkur I – Fyrsta frétt

Í dag mættu um 100 drengir í Vatnaskóg og framundan er viðburðaríkur og spennandi flokkur. Munu þeir dvelja hér fram á föstudaginn 26. júní.

Dagskrá fyrsta dags

Þegar drengirnir komu á staðinn í morgun var þeim vísað inn í matsal þar sem þeir völdu sér borð frá 1-8. Það mun verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgir borðforingi sem sér um eftirlit yfir sínu borði og er til staðar fyrir drengina.

Eftir hádegi og út daginn er pökkuð dagskrá fyrir drengina. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, báta og smíðaverkstæðið, frjálsíþróttakeppnin, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira, að ógleymdri Svínadalsdeildinni, knattspyrnumótinu fræga.

Veðrið er með besta móti, hagstæð vindátt og allt eins og við viljum hafa það. Stefnir í gott veður í þessum flokki.

Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt skemmtilegum örsögum.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Bjartur Dalbú Ingibjartsson – 1. borð
Hallur Hrafn Garðasson Proppé – 2. borð
Björn Atli Hyldahl Guðmundsson – 3. borð
Tristan Enok Kvaran Guðjónsson – 4. borð
Nói Pétur Ásdísarson Guðnason – 5. borð
Sindri Sigurjónsson – 6. borð
Benedikt Þórisson – 7. borð
Tómas Ingi Halldórsson – 8. borð

Þeim til halds og trausts eru forstöðumennirnir Gunnar Hrafn Sveinsson og Hreinn Pálsson.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Karen Sól Halldórsdóttir. Innan hennar sviðs starfa þau Alma Cosser, Kári Markússon Guðnýjarson, Einar Arngeir Heiðarsson og Svanhildur Reynisdóttir.

Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Auðunn Sölvi, Eymundur, Pétur og Úlfur Brynjar.

Þá eru Guðmundur Tómas Magnússon, Sigurður Jóhannesson, Gunnar Magnús Sandholt og Þórir Sigurðsson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að ljúka við byggingu á nýjum Matskála í Vatnaskógi.

Matseðill dagsins

Hádegisverður: Lasagna, hvítlauksbrauð, sósa og salat
Nónhressing: Súkkulaðikaka og bananabrauð
Kvöldverður: Skyr og nýbakað brauð með allskonar áleggi.
Kvöldhressing: Mjólk og kex

Nokkur orð um heimþrá

Í rúmlega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður.

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum