Brottfaradagur 🩷

Stelpurnar vöknuðu frekar þreyttar í morgun, enda búin að vera pökkuð dagskrá hjá okkur hér í hlíðinni.

Eftir að morgunmaturinn kláraðist fórum við saman upp í Hallgrímskirkju og áttum þar kósý kveðjustund. Við sungum saman uppáhaldslögin okkar, rifjuðum upp skemmtilegar minningar, hlógum og skemmtum okkur saman.😀☺️

Stelpurnar fóru svo í ævintýragöngu í skóginum og enduðu á pokafossi í leikjum.

Svo fengu stelpurnar pulsu – namm namm! 🌭 Það sló heldur betur í gegn!

Við veittum alls konar viðurkenningar og svo fóru stelpurnar að pakka. Það gekk eins og í sögu – þetta eru svo flottar stelpur! ❤️

Núna eru þær úti að leika í sólinni og það er ótrúlega gaman að sjá hvað margar þeirra hafa eignast nýjar vinkonur. 🩷

Við foringjarnir viljum þakka ykkur kærlega fyrir traustið. Það hefur verið svo skemmtilegt að kynnast stelpunum ykkar og eiga þessa daga með þeim. ❤️

Við lendum á Holtaveginum um kl. 14:40. 🩷

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum