Veisludagur í 13 flokk🩷

Veisludagur

Stelpurnar vöknuðu yfir sig spenntar fyrir deginum. Eftir morgunmatinn fórum við saman upp í kirkju í biblíulestur. Við ræddum um hæfileika og þær deildu með okkur hverjir þeirra væru. Það var ótrúlega gaman að heyra alla hæfileikana. Það voru til dæmis sund, fótbolti, körfubolti, handbolti, lestur og teikna 🖍️ .
Við vorum allar sammála um að það væri ótrúlega mikilvægt að rækta hæfileikana sína og að enginn væri góður í öllu, en allir væru góðir í einhverju.💪🏽

Við sungum líka uppáhaldslögin okkar. 🎶

Eftir biblíulesturinn var komið að frjálsum tíma. Í boði voru íþróttakeppnir, leikir í íþróttahúsinu, að gera skreytingar fyrir veislukvöldvökuna, að búa til armbönd og svo að vera úti í góða veðrinu að leika sér.

Í hádeginu var grjónagrautur og slátur – namm namm! 😋

Í útiverunni fóru stelpurnar að Brúðarslæðu að vaða í sólinni☀️☀️☀️

Þær fengu með sér kryddbrauð, smjör og súkkulaðismákökur í nesti til að borða í kaffinu. 🍪

Eftir kaffi var komið að vinagangi, þar sem stelpurnar buðu vinkonum sínum upp á nudd, fléttur, naglalakk, bangsanudd og fleira skemmtilegt. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt!

Stelpurnar fóru svo í fínu fötin sín og voru allar stórglæsilegar. ✨

Við fórum svo í „Vefðu mjúka“, sem er skemmtileg hefð. Eftir það fengum við pizzu í veislumat og stelpurnar borðuðu mjög vel! 🍕

Eftir matinn var komið að veislukvöldvöku, þar sem foringjarnir skemmtu stelpunum með stórskemmtilegum skemmtiatriðum. Stelpurnar hlógu og skemmtu sér svo vel. 🥳

Stelpurnar fengu svo að bursta í læknum og fóru sáttar og glaðar að sofa. 🩵

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum