Sjóræningjadagur – Vindó

Í gær vöknuðu stelpurnar við mikinn hàvaða þegar sjóræningjar komu hlaupandi um gangana með tónlist og öskrum. Þema dagsins var sjóræningjaþema. Eftir morgunmat fóru stelpurnar út að fána og þaðan í biblíulestur, þar sem við ræddum um kærleika ì tengslum við hinseginleikann og gleðigönguna sem var haldin um helgina. Við töluðum um gullnu regluna og mikilvægi þess að koma vel fram við alla, sama hvaðan þeim koma eða hvern þeir elska. Eftir biblíulestur fóru fram brennókeppnir og íþróttakeppnin stígvélaspark, þar sem stelpurnar kepptust við að sparka stígvéli eins langt og þær gátu. Einnig var föndurherbergið opið, þar sem var boðið uppá sjóræningjafánagerð.

Í hàdegismat voru kjötbollur, sósa og kartöflumús. Í útiveru kl.14 fóru stelpurnar í skemmtilegan leik sem Flòttinn undan sjòræningjunum, en þar kepptust þær við að vera ekki fangaðar af brjàlæðum sjóræningjum og lenda í fangelsi. Í kaffinu var boðið uppá sjóræningjasúkkulaðiköku. Eftir kaffið hélt frjáls tími áfram, brennóleikir, íþróttakeppnir (telja seríos og mæling á stærsta brosinu) og svo lék veðrið við okkur svo úti var vatnsstríð og steinamálun. Allar stelpurnar eyddu deginum útí í sólinni ☀️

Í kvöldmat var boðið uppà mexíkósúpu og meððí. Stelpurnar eru MJÖG duglegar að borða 🙂 Ì kvöldvöku fór fram leikurinn/keppnin Viltu finna fjàrsjòð? Þar kepptu herbergin sín à milli og eitt herbergi stóð uppi sem sigurvegari fjársjòðsins.

Í öllum matartímum voru foringjar með sjóræningjaleikþátt með leik, dans og söng. Stelpunum finnst alltaf jafn skemmtilegt að sjá starfsfólkið detta í fyndna karaktera í fyndnu og vitlausu sprelli.
Flottur og sólríkur dagur á enda.

Mig langar að enda á að minna á að við munum fara í smá ferðalag til að geta upplifað sólmyrkvann á morgun. Ef einhver hafði hugsað sèr að sækja barnið sitt fyrir sólmyrkvann, viljiði endilega làta mig vita með góðum fyrirvara.

Kveðja úr Hlíðinni, Marìn forstöðukona

Skráðu þig á Póstlistann

Fáðu skemmtilegar fréttir úr leik og starfi KFUM & KFUK

KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. 



Holtavegi 28

104 Reykjavík

Ísland

Kt: 690169-0889

KFUM og KFUK á gott samstarf og nýtur stuðnings eftirtaldra aðila:
© 1989 – 2024 KFUM & KFUK. Allur réttur áskilinn

Leita á vefnum